Goðasteinn - 01.06.1974, Blaðsíða 27
Hér er svo sagan um heiðurskarlinn, sem fór í kaupstaðinn að
hitta kaupmanninn og bað hann í öllum guðanna bænum að hjálpa
sér um borð utan um konuna sína. „Er hún nú dauð?“ spyr kaup-
maður. „Nei, en hún var veik þegar ég fór að heiman og getur
vel verið dauð, þegar ég kem heim,“ ansar karl. „Þú kcmur þá
aftur og sækir borðin,“ segir kaupmaður. „Það get ég ómögulega,"
segir hinn, „og svo get ég nú farið að deyja, og ekki er betra að
ég komi þá.“ Hann fékk borðin.
Höfundur þessa þáttar, Björg Jónsdóttir, hefur áður verið
Goðasteini innanhandar með efni. Björg er fædd í Hallgeirseyjar-
hjáleigu í Austur-Landeyjum 1. júlí 1896, dóttir Jóns Guðnasonar
bónda þar og síðar í Hallgeirsey og konu hans, Elínar Magnús-
dóttur frá Strandarhöfði. Björg giftist 1922 Sigurði Vigfússyni
bónda og kcnnara á Brúnum. Sigurður dó 1936. Síðari maður
Bjargar (1939) var Sigmundur Þorgilsson skólastjóri. Bjuggu þau
á Ásólfsskála undir Eyjafjöllum 1940-64 en síðan á Hellu, þar
scm Sigmundur andaðist 1968. „Hagalagðar“ Bjargar eru að mcstu
saman teknir á síðasta ári. Með þeim skipar Björg sér í röð
þeirra mörgu ágætu kvenna, sem lagt hafa íslensku þjóðhátta-
safni föng í hendur. Er þá og skylt að geta þess, að fátt hcfur
áður verið skráð um þetta efni úr Landeyjum. Um einn fulltrúa
þeirrar byggðar hef ég vitni eins frábærasta íslendings þessarar
aldar að viti og mennt, dr. Sigurðar Nordals. Hann sagði mér, að
á hcimili þeirra hjóna hefði eitt sinn unnið stúllca úr Landeyjum,
og sér væri jafnan í minni, hve mál hennar hefði verið auðugt.
Mál Bjargar Jónsdóttur sver sig í sömu ætt. Goðasteinn þakkar
htifundi þáttinn.
Þ. T.
Godasteinn
25