Goðasteinn - 01.06.1974, Page 29

Goðasteinn - 01.06.1974, Page 29
austur mcð Síðufjöllunum og hlaða framburði sínum upp að hraun- röndinni að austan, eins og áin gerir cnn í dag, og hækkar landið stöðugt þeim megin. Við þctta hafa tjarnir og stöðuvötn myndazt meðfram hraunröndinni. Athyglisvert er, að nöfn sumra þeirra enda á flóð (Víkurflóð, Fagurhlíðarflóð, Fuglaflóð), en uppi í hrauninu er notað orðið vötn (Tunguvötn, Hæðargarðsvatn), cn ekki er það á mínu færi að gefa skýringu á því. Gróður mikill er í Syngjanda, og grynnist hann óðum. Varla hygg ég að það muni taka meira en tvær alc|ir, að þarna verði mýri. Hvort mun þá nafnið lifa? Áður rann Skaftá um aldir suður Landbrot og í mörgum kvísl- um. Ekki er vitað, hvenær hún tók fyrst að rcnna austur með Síðu, en ekki sýnist mér ólíklegt, að það hefði gctað skeð á land- námsöld og að þar sé Nýkomi sá, er Landnáma getur um, cn því hefur oft áður verið haldið fram. Refsstaðir heitir hæðardrag, sem takmarkar Syngjanda að austan. Afbökun mun það vera úr bæjarnafninu Erpsstaðir, sem kemur fyrir í fornum máldögum og samkvæmt þeim hafa verið milli Kársstaða og Hátúna. Síðast var þar byggð laust eftir miðja 19. öld. Þá bjó einsetukona þar, sem nú er ncfnt framan í eða sunnan í Refsstöðunum. Er það ofan við (norðan v.ið) Ófæru, gegnt Há- túnum. Var bærinn þar í brekku og sneri móti suðri. Rústir þessa litla bæjar eru enn mjög grcinilegar. Ekki hygg ég, að hinir fornu Erpsstaðir hafi ver‘ð þar, heldur ætla ég þá hafa verið í Refsstöðum miðjum, austantil og norður af Gróutjörn. Þar á brekkubrún sér móta fyrir bæjarrústum all forn- legum. Virðist sá bær hafa snúið burstum móti suðri, og hefur byggingarlag líklega verið líkt því, sem algengt var hcr um slóðir fram á þcssa öld. Mér sýnist húsaröðin hafa verið um 70-80 m löng frá austri til vesturs, en ekki er víst að hún hafi verið óslit.in. Bæjarstæði hefur þarna verið snoturt og útsýni til austurs og norðurs hið fegursta. Sennilega mætti fara nærri um, hvenær bær þessi fór í eyði, og e.t.v. af hvaða sökum, með þvt að rannsaka rústirnar, en saga hans er nú hulin gleymsku. Goðasteinn 27

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.