Goðasteinn - 01.06.1974, Page 33

Goðasteinn - 01.06.1974, Page 33
var gott, að þú komst, því ég hef alltaf verið að hugsa um að skrifa þér út af því, sem kom fyrir mig nýlega.“ Hún sagðist vera dálítið dulræn og sjá það, sem aðrir sjá ekki, 1 því ástandi, sem miðlar nefna trans eða dáleiðslu. Henni sagðist þannig frá: ,,Ég var ein í herberginu mínu og fann, að ég var að komast í miðilsástand. Þá opnast dyrnar og inn kemur virðulegur öldungur í fornmanna búningi. Hann settist á rúmið hjá mér og gerði mér skiljanlcgt hver hann væri. Þetta var Snorri Sturluson. Þá opnast dyrnar aftur og inn kemur maður í fornmanna bún'ngi, ungur og svo glæsilegur, að ég minnist ekki að hafa séð glæsilegri mann, og mér dettur enginn annar í hug en Höskuldur Hvítanes- goði og lét hann skilja það. Hann tók þessu ekki nógu vel. Þá sagði Snorri: „Hann þekkir ekki þetta nafn, því ég nefndi hann þetta fyrstur.“ Eftir þetta hurfu þeir út úr herberginu.“ Þetta þarf nú ekki mikillar skýringar við. Höskuldur er nefndur Höskuldur Þráinsson í Njálu, þar til Snorri Sturluson gefur honum þetta viðurnefni, Hvítanesgoði, þegar hann skrifar Njálu. Hann er ekki heldur sá eini af Njálu- mönnum, sem ekki mundu kannast við nafnið sitt, eða hvað um Njál? Það hefur enginn nefnt hann Brennu-Njál nema Snorri. Njála endar á orðunum: ,,Og lýk ég þar Brennu-Njáls sögu.“ 1 Snorra-Eddu stendur við eina vísu: „Ems og Brennu-Njáll kvað.“ Þarna höfum við það svart á hvítu, enginn hefur nefnt hann þetta nema Snorri. Tökum svo ættartöluna á bls. 69 í Fornritaútgáfu Njálu, en þar segir: Bróðir Valgarðs hins gráa var Úlfur aurgoði, sem Odda- verjar eru frá komnir. Úlfur aurgoði var faðir Svarts, föður Loð- mundar, föður Sigfúss, föður Sæmundar fróða, en frá Valgarði er kominn Kolbeinn ungi.“ Því má skjóta hér inn í, að Svartur átti Helgu í Odda, Þorgeirsdóttur, og hefur þannig komist að Odda- landi, og þar efldust niðjar hans svo, að þeir urðu ein mesta höfð- ingjaætt landsins. Fyrir daga Jóns Loftssonar var Sæmundur fróði þeirra langfrægastur. Hvernig víkur því við, að ættin er ekki rakin lcngra í Njálu? Hefðu nú prestar á 13. öld skrifað Njálu, mætti ætla, að þeir hefðu rakið ættina til Jóns Loftssonar og Páls biskups. Það ligg- Godastevm 31

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.