Goðasteinn - 01.06.1974, Side 34

Goðasteinn - 01.06.1974, Side 34
ur nærri að geta sér þess til, að ættartalan hafi verið til í Odda og samin af Sæmundi sjálfum. Snorri Sturluson hefur svo látið hana óbreytta, þegar hann setti saman Njálu í Reykholti um 1230. Sjáum við ekki háðsbrosið á Snorra, þegar hann sendi tengdasyni sínum þessa ör: ,,En frá Valgarði er kominn Kolbeinn ungi.“ Ekki fæ ég betur séð en hér af megi marka ritunartíma Njálu, hvað sem fræðimenn segja þar um. Kolbeinn var á þessum tíma einn mesti höfðingi landsins, en tengdasonur Snorra varð hann 1228. Eigum við svo ekki að slá því föstu, Rangæingar, að Njála sé runnin frá Odda og Snorri hafi goldið Rangæingum fósturlaunin með því að gefa þeim eitt mesta listaverk, sem skrifað hefur verið, ekki einasta á íslandi, heldur í öllum he'mi á þcim tíma, svo þeir mega þar vel við una? Svo er best að cnda þetta spjall með því að láta Sigurð Nordal lýsa höfundi Njálu, og er það á þessa leið í bók hans Um íslcnskar fornsögur: „Höfundur Njálu er, eins og Stephan G. Stephansson hefur kallað Shakespeare, ræningi, sem sækir sér efni úr öllum áttum, nýtir eldri sagnarit eins og honum hentar, mikill í kostum sínum og göllum, mætti sínum og veikleika. Af höfundum íslend- ingasagna hefur Njáluhöfundur ausið af flestum bókmenntalind- um á sama hátt og Snorri meðal höfunda konungasagna." Þctta samþykkjum við með ánægju. Að svo mæltu óska ég Aðalheiði árs og friðar og vona, að hana dreymi vel og að hún leyfi Goðasteini að birta bestu draumana. 32 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.