Goðasteinn - 01.06.1974, Side 50
leggja leið sína í vaxandi mæli um Fmimvörðuháls, bæði að norðan
og sunnan. Ekki hefur ætíð tekist svo vel til sem skyldi á þess-
ari leið og er þess skemmst að minnast, er þar gerðist hörmulegur
atburður á hvítasunnunni 1970. Þá lagði félagsskapur úr Reykja-
vík, er heitir Skand.inavisk Boldklub, upp sunnan frá um Fimm-
vörðuháls yfir í Þórsmörk. Gerði ofsaveður með slyddu og snjó-
komu á fólkið, og beið þrennt bana, einn karlmaður og tvær kon-
ur, af vosbúð og hrakningum. Er vonandi að slíkir sorgaratburðir
eigi ekki eftir að endurtaka sig. En aldrei verður það of brýnt
fyrir fólki að fara með gát á svo hálendri og varasamri leið,
sem þarna er um að ræða.
Árið 1960 urðu þáttaskil í ferðalögum um Fimmvörðuháls, þvi
að þá gekkst Flugbjörgunarsveitin í Austur-Eyjafjallahreppi fyrir
því að ryðja akfæran veg upp frá Skógum og langleiðina inn að
skála Fjallamanna á háfjallinu. Var þessi vegarlagning hugsuð
sem öryggisráðstöfun til þess að björgunarmenn yrðu fljótari á
vettvang, ef flugslys yrði á jöklum uppi, en þau hafa nokkur orðið
fyrrum. Nokkrum árum síðar lét og Flugbjörgunarsveitin stika
ieiðina að verulegu leyti og auk þess höggva sæmilega götuslóð
fyrir hesta í móbergsgil eitt rétt fyrir vestan Heljarkamb á Goða-
landi. Var þar með orðið þokkalega hestfært þessa leið í Þórs-
mörk. Sumarið 1966 fóru níu manns með tuttugu hesta þessa ó-
vcnjulegu leið yfir í Mörk og tókst ferðin vel í alla staði. Hcfur
og að rmnnsta kosti einu sinni verið farið þarna yfir á hestum
síðan og ef til vill oftar.
En nú er hæfilegt að snúa sér að leiðarlýsingu um Fimmvörðu-
háls og leggja upp frá Skógum á björtum og sólríkum sumar-
morgni með nesti og nýja skó. Skulum við fara gangandi að
þessu sinni, því að þannig nýtur maður þess best, sem fyrir augu
ber. Leggjum við nú land undir fót og göngum upp sneiðingana
ofan Ytri-Skóga og heitir þar Kvennabrekka og Bjallabrekka
fyrsta spölinn. Ekki nemum við staðar, fyrr en við stöndum á
fjallsbrúninni, og er þaðan forkunnarfagurt útsýni yfir láglendið
fyrir neðan. Fyrir fótum okkar liggja skógi vaxnar hlíðar og græn
tún. Þar eru og skólahúsin í Skógum, byggðasafnið og allmörg
íbúðarhús, sem þarna hafa risið á síðustu árum. Einna starsýnast
48
Gndasteinn