Goðasteinn - 01.06.1974, Side 51
verður okkur á túnræktina á Skógasandi, sem mjög sker sig úr um-
hverfi sínu. Þarna var fyrrum svart sandflæmi, svo að varla óx
þar stingandi strá. En árið 1955 var þar hafist handa við nýrækt,
og var það upphaflega ætlunin að eyfellingar fengju þar bithaga
fvrir sauðfé í stað Goðalands, er þeir höfðu nytjað fyrrum. Beittu
Landgræðsla íslands og Skógrækt ríkisins sér fyrir þessum fram-
kvæmdum og studdu heimamenn í þessari ræktun. En gróðurlend<ð
á Skógasandi hentaði ekki vel til beitar, því að sauðkindinni fell-
ur ekki einhæfur gróður. En það hentaði þeim mun betur sem
tún og var því brátt notað til heyskapar að mestu leyci. Hefur
þessi ræktun aukist nokkuð jafnt og þétt og er nú kom<n yfir
þrjú hundruð hektara að stærð, svo að þarna getur að líta eitt
af stærstu túnum landsins. f austurátt sér vel til Mýrdalsins, þar
sem Pétursey, Fellsfjall og Búrfell rísa yfir sléttuna, en Dyrhóla-
ey stendur traustan vörð við hafið og lætur engan bilbug á sér
finna. Gegnt okkur vestan Skógár rís Drangshlíðarfjall, myndar-
legt álitum og rís efst í Drangshlíðartindi, sem minnir helst á
egypskan píramída.
Við göngum nokkru lengra og sjáum þá brátt yfir he<ðina norð-
an þessa fjalls og niður yfir undirlendið með fjöllunum, þar sem
Holtsós blikar í morgunsól, en hann skiptir sveitum í Austur- og
Vestur-Eyjafjöll. Til suðvesturs að sjá blasa Vestmannaeyjar við
líkt og floti fagurra skipa á glitrandi haffletinum.
En betra er að nota tímann og halda áfram. Því göngum við
um stund upp melöldur og ása. Skógá fellur í allmiklu gljúfri
vestan okkar. Frá henni kveður við þungur fossniður og er það
ekki að ófyrirsynju, sem þetta fagra vatnsfall nefnist Fossá í forn-
um ritum, því að í henni er mikill fjöldi fossa. Segja kunnugir
menn að fyrir ofan sjálfan Skógafoss séu að minnsta kosti 22 aðrir
fossar og gefa sumir þeirra Skógafossi lítið eftir að fegurð, þótt
ekki nái þeir hæð hans. Skammt til austu.rs rennur og áin Kverna
í gili og sveigir vegurinn í áttina að henni og fylgir henni síðan
lengi. í henni eru líka nokkrir ljómandi fallegir fossar, sem er
vel ómaksins vert að skoða. Fram undan rís nú allmikill fjalls-
hryggur á m.iðri heiði og liggur frá austri til vesturs. Nefnist hanu
Kambfjöll eða Kanfjöll. Vestan Skógár liggur Hornfell frá norðri
Goðasteinn
49