Goðasteinn - 01.06.1974, Blaðsíða 53
ár sakir veðra og vinda, auk þess sem umgengni hefur ekki verið
sem best hjá öllum, sem þar hafa gist. Segja má líka að það standi
á fremur óhentugum stað þarna á háhryggnum.
Hvert sem l.itið er frá skálanum, má segja að útsýni sé hið
dýrlegasta. f austri og vestri rísa jöklarnir, hvítir og tignarlegir, og
í suðri getur að líta heiðar og fjöll og í fjarska glampar hafflötur-
inn og minnir á eilífðina. Norðan skálans taka við naktir melar
og jökulhálsar með fönnum í slökkum og giljum. Fjær sjást brúnir
Goðalandsjökuls og efstu toppar Tindfjalla. Gróður er að vonum
lítill, en jöklasóley unir sér þarna vel, auk ýmissa annarra teg-
tegunda, sem gaman er að skoða.
Nú höldum við norður háfjallið. Einstakar melhæðir þar efra
nefnast sker og mun það málvenja frá því að jökull lá þarna yfir
og melarnir stóðu upp úr líkt og sker úr sæ. Fyrst göngum við
yfir á Þrívörðusker og þaðan yfir á Bröttufannarsker, sem er ail-
stór hæð á norðurbrún fjallsins. Af Bröttufannarskeri er útsýn
stórkostleg. Fyrir fótum okkar liggur Goðaland, stórbrotið og
hrikalegt landslag með fjölmörgum giljum, gljúfrum og fellum.
Mest kveður þar að Útigönguhöfða, sem er stærðar fjall. Fjær
liggur Þórsmörk, og við greinum þar ýmsa kunna staði eins og
Rjúpnafell, Valahnúk, Langadal, Húsadal, Hamraskóga, Slyppu-
gil, Búðarhamar og fjölmargt annað. Fyrir innan Mörkina taka
við Almenningar og þar rísa Lakar, háir og tígulegir. Handan
Markarfljóts setja fjölmörg kennileiti svip á landið. Þar er Græna-
fjall með Fauskheiði, Einhyrningi, Hesti og Hrútkolli. Mest ber þó
á Tindfjöllum með samnefndum jökli. Þar í fjöllunum er Hita-
gil, sem jafnan rýkur úr, og Kerið fræga, þar sem Höfðabrekku-
Jóku, mögnuðum draug, var komið fyrir á sinni tíð. Einnig sér
vel til Þórólfsfells og út Fljótshlíðina til Þríhyrnings.
En ekki megum við eyða mjög löngum tíma í landfræðilegar
athuganir, heldur ieggja niður brattann og sneiða rétt fram hjá
Hvannárgilinu austanverðu. Hallar nú ört undan fæti og förum
við fyrst niður snarbrattan móbergsfláa meðfram svonefndri
Bröttufönn, sem nær niður undir Heljarkamb. Fönn þessa mun þó
taka upp að mestu síðari hluta sumars. Þegar kemur niður úr
mesta brattanum, taka við mosavaxnar flatir, sem enda við gil
Goðasteinn
51