Goðasteinn - 01.06.1974, Side 60
komum með féð til Víkur. Þeim móttökum gleymi ég aldrei.
Oft vai okkur Tungumönnum vel tekið í Vík, en aldrei betur.
Við þuritum ekkert annað að gera en að afhenda féð og því var
öllu slátrað um kvöldið. Hestar okkar voru strax hýstir og við
látnir fara í kaffi til skiptis. Hefði Einar Hjaltason ekki undir-
búið þessar móttökur, hefði ekki verið hægt að slátra öllu fénu
um kvöldið, og vorum við ánægðir, hvað þetta gekk nú allt vel.
Næsta dag lögðum við af stað austur og höfðum klyfjar á
hestunum og gengum, var svo gert í öllum ferðum þann vetur og
þær urðu margar.
Heldur var tíð mild á jólaföstu og oft rigning, en ekki lét
sandurinn neitt undan, rann þó aðe.ins af lækjarbökkum.
Auðséð var, að nú voru miklir erfiðleikar fram undan. Þá
bætti það ekki úr, þegar fréttist að spánska veikin færi hraðbyri
út um land, ef sá ófögnuður ætti nú að dynja yfir okkur ofan á
allt annað. En sú gæfa var yfir Skaftfellingum, að í héraðið fluttist
sá mikilhæfi maður, Gísli Sveinsson, sem þá um sumarið var veitt
sýslumannsembættið í Skaftafellssýslum. Hann setti sýsluna í sótt-
kví og mátti enginn koma austur yfir Jökulsá á Sólheimasandi, og
enginn fara út yf.ir hana nema þeir, sem ekki ætluðu að koma
aftur þann vetur. Sjómenn allir fengu að fara og aðrir þeir, sem
hugðust dveljast vetrarlangt fyrir utan. Póstsamgöngum var þó
haldið uppi með því móti, að póstarnir mættust við Jökulsá, en
alveg bannað að þeir hittust. Með þessu hafðist að verja sýsluna
fyrir þessari óheillaveiki. Og það held ég, að cngum öðrum manni
en Gísla Sveinssyni hefði tekist, en enginn vildi verða til þess að
brjóta boð hans.
Þá fór Gísli Sveinsson sýslumaður þess á lcit við Landeyinga,
hvort þeir gætu tekið hross af Tungumönnum, aðallega held ég
til útigöngu. Komið var fram á þorra, þegar að því var hugað,
en vitanlega hefðu Landeyingar tekið hrossin fyrr, ef um það hefði
verið hugsað í tíma. Þarna fóru víst um 50 hross úr Tungunni og
það var mikil og höfðingleg hjálp. Fyrir þetta tóku Landeyingar
ekki. eina krónu, og það sem meira var um vert, að þeir tóku
alla brúkunarhesta á gjöf og skiluðu þeim um vorið vel öldum.
58
Goðasteinn