Goðasteinn - 01.06.1974, Page 62
Fór nú að sjást, að ekki væri hægt að halda búskap áfram á
fjórum jörðum í sveitinni, þar sem öskulagið var þykkast. Þessar
jarðir voru: Snæbýli, Ljótarstaðir, Búlandssel og Svartinúpur.
Á Snæbýli voru til heimilis 5 manns: húsbóndinn og hjón með
tvö börn. Þetta fólk fluttist til Reykjavíkur.
Á Ljótarstöðum voru 11 manns í heimili: Foreldrar mínir,
móðir föður míns, þá um nírætt, ég og uppeldissonur þeirra, ekkja
Bárðar bróður míns með tvö börn á þriðja og fimmta ári, systir
mín og maður hennar með tvö börn á þr.iðja og fyrsta ári. For-
eldrar mínir fóru til sonar síns að Skálmarbæ í Álftaveri, systir
mín og maður hennar fóru að Holti í sömu sveit og einnig ekkja
bróður míns með börn sín. Frá Holti fluttu sig tveir bændur,
sem ekki töldu sig geta verið þar, en aðkomufólkinu varð það
að góðu. Slægjur þarna voru góðar um sumarið. Ég fór til Reykja-
víkur og vann þar við vegagerð næsta sumar.
Frá Búlandsseli fiuttist Páll Pálsson með konu sína og fimm
börn, elsta var átta ára, móður sína og tengdamóður. Þetta fólk
allt fluttist að Söndum í Meðallanúi, en þaðan fór þá Jóhannes
Guðmundsson. Páli urðu þessi skipti að góðu. Hann heyjaði vel
strax fyrsta sumarið og bjó á Söndum mörg ár. Um Pál held ég
óhætt að segja, að enginn hafi verið verr staddur en hann eftir
Kötlugosið. Ég held ég muni rétt, að hann segð.i mér, að þá ætti
hann þrjár ær uppistandandi um haustið. Meðallendingar reynd-
ust Páli vel og gáfu honum fyrsta haustið eitthvað af kindum.
Brátt rættist úr mestu erfiðleikunum, enda Páll bráðduglegur mað-
ur og hagleiksmaður mikill, kona hans líka dugmik.il. Hross mun
hann hafa átt sex að tölu og eina kú.
Frá Svartanúpi fluttist Björn Björnsson, sem þá var nýbyrjaður
búskap þar, með konu, tengdamóður og gamlan mann, sem hjá
honurn var. Björn flutti sig til Víkur, en stundaði það sumar vega-
vinnu við Reykjavik. í Svartanúpi hefur ekki verið búið síðan.
Alls munu hafa flutt burt úr Skaftártungu 32 menn. Þá munu
hafa verið t hreppnum 120-130 manns. Það munar um minna
fyrir eina sveit að missa burt um fjórða part af fólki sínu og af
því fluttist ekki aftur í sveitina nema sex menn.
60
Godasteinn