Goðasteinn - 01.06.1974, Page 67

Goðasteinn - 01.06.1974, Page 67
Einar Erlendsson og kona hans Þorgerður Jónsdóttir. inn og því síður bíllinn. Losnuðu þessir hraðboðar oft og tíðum við marga svitadropa á lcið s.inni, enda rækilega lagt fyrir þá að doka hvergi. Stóðst það á endum, að sjórinn taldist fær, sem kallað var, og nóg var komið af fólki til vinnu, 50 sjómenn, scm voru skips- hafnir á þrjá uppskipunarbáta, og um 30 í landi, til að taka á móti vörunum í sandi og koma þeim í hús, alla leið upp á pakk- húsloft. Svitnaði margur við þann burð, því verulegt magn þunga- vörunnar var þá í 200 punda sekkjum, svo sem hrísgrjón, banka- bvgg, matbaunir o. fl. Heim úr sandi voru vörurnar fluttar á járnbraut með þar til gerðum vögnum. Ýttu 4-6 menn hverjum vagni á brautinni alla leið upp að verslunarhúsunum. Járnbrautin vat tekin upp að haust- inu, en lögð niður sandinn að vorinu, rétt áður en von var á vöruskipinu. Er ekki að orðlengja það, að uppskipuninni var haldið áfram, þangað til búið var að losa úr skipinu allar þær vörur, sem hingað áttu á land. Var þá komið nokkuð fram á næsta dag. Tímakaup Goðasteinn 65

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.