Goðasteinn - 01.06.1974, Síða 68
mun hafa verið greitt, sjómönnum 35 aura og landmönnum 20-25
aura. Ekki þekktist þá eftir- eða næturvinnutaxti, og þó var
uppskipunarvinnan svo eftirsótt að oft komu fleiri en not var fyrir.
Ekki þekktist heldur að borga fólki, sem búið var að kalla til
vinnu, fyrir lengri eða skemmri bið vegna brims, sem hindraði
oft afgreiðslu skipa lengri eða skemmri tíma. í slíkum biðum fékk
aðkomufólk þó að sofa í pakkhúsi verslunarinnar.
Næstu 3-4 daga, eftir að allar vörurnar úr skipinu voru komnar
í hús, var sölubúð og pakkhúsi lokað fyrir allri verslun. Var sá
tími notaður til að taka upp vörurnar, verðleggja þær og koma
þeim fyrir, eins og þá þótti best hcnta fyrir vorkauptíðina.
Fram að vorkauptíðinni var svo fremur lítið um að vera, cn
fyrstu dagana í júlí komu fyrstu ullarlestirnar að austan. Komu
venjulegast nokkrir saman. Þcir efnuðustu með 6-8 hesta í taumi
með ull á klökkum, en aðrir, þcir fátækari, allt niður í 1-2 hesta
með ull. Þegar litið er til þess, að ullin var þá nær það eina, er
verslað var fyrir, hafa ekki allir farið héðan heim á leið með
mikla né fjölbreytta björg í bú.
Margir austanmanna voru í tjöldum, meðan þeir dvöldu hér í
kauptíðinni.
Um miðjan júlí mátti segja, að kauptíðin næði hámarki, og var
þá margt um manninn og mikil ös í búðinni, enda verslunarsvæðið
þá stórt, alla leið frá Lómagnúpi og vestur að Seljalandsmúla
undir Vestur-Eyjafjöllum. Auk þess komu Öræfingar æði oft með
sína vorverslun hingað og þá alltaf allir saman í einum flota.
Afgreiðsla í búðinni fór eftir röð innleggjenda, og gat komist
upp í 2 daga, að menn kæmust að, eins og það var kallað.
Hjá okkur, sem afgreiddum í búðinni í kauptíðinni, býst ég
við, að vinnudagurinn þætti nú nokkuð langur. Opnað var kl. 7
að morgni og oft ekki lokað fyrr en kl. 10 að kvöldi. Aðra tíma
ársins var vinnutíminn frá kl. 8 árd. til kl. 8, og oft rúmlega það,
að kvöldinu.
Frá veru minni í Brýðabúð áðurgreint ár, og enda síðar, eru
mér enn minnisstæðir nokkrir merkir bændur. Settu þeir svip sinn
á vorkauptíðina, bæði innan búðar og utan, nokkuð þó hver með
sínu móti. Vil ég í því sambandi nefna þessa: Þórarinn á Selja-
66
Goðaste'mn