Goðasteinn - 01.06.1974, Page 73

Goðasteinn - 01.06.1974, Page 73
ótal dæm.i, að hreyfir af víni segja menn frá ýmsu því, er þcir ógjarnan ræða undir öðrum kringumstæðum. Frá þessu sagði mcr tengdafaðir minn, Jón Samúelsson, er lcngi bjó á Hofsstöðum í Álftaneshreppi á Mýrum, og oftast við þann bæ kenndur, en hann var sonur kærustuparanna, Óíafar og Samúels, er um getur hér að ofan. Jón ólst upp í Knarrarnesi og heyrði um þetta talað á uppvaxtarárum sínum. 12. des. 1962. Svipur lifandi konu Atburður sá, er hér verður sagt frá, gerðist skömmu fyrir s.l. aldamót, ég man ckki hvert árið, í Krossnesi í Álftanesshreppi á Mýrum. Um þessar mundir bjuggu þar, og höfðu lengi búið, öldruð hjón, börn þeirra voru öll uppkomin, og farin að heiman utan þrjú: Málfríður, Ingibjörg og Andrés. Þann.ig hagaði til í Krossnesi á þeirri tíð, að fjárhúsin voru alllangt frá bænum, lík- lega um hálfrar klst. gang, en engjarnar alveg hjá húsunum. Eng- in hæð er á milli húsa og bæjar. Sést því öll leiðin, bæði frá bæn- um og húsunum. Öll voru fjárhús í Krossnesi cindyra, og þannig byggð, að á báðum hliðarveggjum var bcygja á móts við fremri jötuendann, og svo hlaðn.ir hvor á móti öðrum uns hæfileg dyra- brcidd var á milli veggjacndanna. Var því jatan beint inn af dyr- unum og voru svo sem 2-3 fet frá dyrum að garðahaus. Sumarið, sem hér um ræðir, var í Krossnesi kaupamaður er Magnús hét Arnbjarnarson. Dag nokkurn á engjaslætti, fóru þeir Magnús og Andrés strax um morguninn á engjar. Málfríður átti að vera heima við heyþurrkun, en Ingibjörg skyldi vera heima til hádegis, fara svo mcð hádegiskaffið á engjarnar og vera þar það, sem eftir væri dagsins, Þegar tími þótti til kominn, fóru þeir Andrés og Magnús inn í eitt fjárhúsanna, til að matast. Að því búnu lögðust þeir upp í jötuna og ætluðu að fá sér hádegisblund - svo sem venja var til víða í sveitum hér fyrrmeir. - Lögðust þeir andfætis, þannig að Andrés sneri höfði fram en Magnús inn. Við honum blöstu því dyrnar, og sá hann þaðan, sem hann lá, alla leið heim í Krossnes, því fjárhúsdyrnar sneru í þá átt. Godasteinn 71

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.