Goðasteinn - 01.06.1974, Page 76

Goðasteinn - 01.06.1974, Page 76
Sigurður í Hjörsey segir fyrir um clauða sinn 1 jólablaði Alþýðubladsins, sem út kom núna fyrir jólin 1961, er grein um sjóslysið við Hjörsey 1. maí 1897, eftir Jóhann Jónatans- son. Við lestur þessarar greinar rifjaðist upp fyrir mér tvennt í sambandi við þetta slys. Annað var, hve ákveðið Sigurður í Hjörsey sagði fyrir um dauða sinn. Hann sagði ekki einum kunn- ingja sinna, heldur mörgum, síðasta veturinn sem hann lifði, að með vorinu - þ.e. 1897 - yrðu sínir dagar taldir. Hitt, að hann vitjaði nafns til nágrannakonu sinnar fáum nóttum eftir dauða sinn. Um fyrra atriðið sagði mér greinilegast Guðjón Sigurðsson, cr lengi bjó í Straumfirði, greinargóður og gagnmerkur maður. Á síðustu áratugum s.l. aldar var verslun í Kóranesi. Þar versl- uðu Mýramenn mikið, einkum þeir, er nálægt sjó bjuggu. Þangað var stutt að fara í kaupstað, og þangað auðvelt að fara sjóveg, enda sú leiðin farin á öllum tímum árs, ef ekki hamlaði ís eða óveður. Hins vegar ekki annað yfir að fara á landi en illfærar vegieysur, hvert sem fara átti, nema þegar hjarn var. Um alda- raðir og allt fram á fyrstu áratugi þessarar aldar, stunduðu margir Mýramenn sjóróðra á Suðurnesjum á vetrarvertíðum. Skömmu fyrir byrjun vetrarvertíðar 1897 fer Sigurður í Hjörsey kaupstaðarferð í Kóranes. Þar hittast þeir, hann og Guðjón í Straumfirði, en þeir voru nákunnugir. Guðjón ætlaði til sjóar, eins og það var kallað, þ. e. róa frá Suðurnesjum komandi vertíð. Þegar þeir kvöddust, segir Sigurður: „Nú ferð þú suður, og ég vona að það gangi allt vei, en við sjáumst ekki oftar.“ 74 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.