Goðasteinn - 01.06.1974, Síða 78

Goðasteinn - 01.06.1974, Síða 78
Draumur Bjarndísar Sigurðardóttur á Álftárósi í Mýrasýslu Bjarndís Sigurðardóttir - fædd 21. ágúst 1863, dáin 21. júní 1950 - og Sesselja Jónsdóttir - fædd 11. okt. 1862, dáin 27. febrúar 1955 - voru grannkonur mikinn hluta sinnar löngu ævi, og lengi húsfreyjur, sú fyrrnefnda á Álftárósi, hin síðarnefnda á Hofsstöð- um, en Hofsstaðir og Álftárós eru nágrannabæir. Innan við tíu ára aldur fluttist Sesselja með forcldrum sínum, Jóni bónda Þor- valdssyni og Oddfríði Sigurðardóttur að Hofsstóðum, og var þar til æviloka. Bjarndís kom að Álftárósi 15 eða 16 ára gömul og var þar til dauðadags. Einhverntíma á unglingsárunum dreymdi Bjarndísi, að hún sá tvo fugla, þótti henni þær vinstúlkurnar, Sesselja á Hofsstöðum og hún, eiga sinn fuglinn hvor. Fuglarnir voru sinn af hvoru kyni, sátu hlið við hlið, sýndu hvor öðrum ástarhót, sjáanlega í hjúskaparhugleiðingum, ef til vill þegar orð- in hjón. Árin liðu og báðar giftust, Bjarndís Erlendi bónda Sigurðssyni á Álftárósi, Sesselja Jóni bónda Samúelssyni á Hofsstöðum, og báðar eignuðust börn með mönnum sínum. En rúmlega 40 árum síðar en Bjarndísi dreymdi drauminn, sem að ofan er getið, skeði það, að Ólöf dóttir Sesselju og undirritaður, sem er sonur Bjarn- dísar, felldu hugi saman. Og nú, þegar þetta er ritað, erum við Ólöf á fertugasta hjúskaparári okkar. Draum þennan sagði mamma mér, nokkru eftir að ég hafði skýrt hcnni frá trúlofun okkar Ólafar. 18. mars 1963. Draumar Sigurbjargar á ökrum Síðla sumars einhvern tíma á árunum milli 1920 og 1930, dreymdi Sigurbjörgu Bjarnadóttur, þá bústýru á Ökrum á Mýrum, að hún þóttist úti stödd á hlaðinu á Ökrum. Gengur þá í hlaðið maður er hún hafði aldrei séð fyrr og bar engin kennsli á. Er þau höfðu heilsast, býður hún honum til bæjar, en hann afþakkar það, segist ekki ætla að stansa neitt núna, en hann verði á ferð hér bráðum 76 Godasteinn
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Goðasteinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.