Goðasteinn - 01.06.1974, Blaðsíða 85
Ólafur konungur var aðeins tíu ára, er hann kom til valda í
Noregi og stjórnaði móðir hans í nafni hans einnig þar í landi.
Um sama leyti fékk hún boð frá mörgum stuðningsmönnum sín-
um í Svíþjóð um að þeir væru reiðubúnir til að sameinast um
stuðning við sonarson Magnúsar konungs, son hennar, Ólaf
Hákonarson, sem réttmætan konung Svía.
En þegar allt virtist leika í lyndi, kom áfaliið mikla, er líklegt
var til að setja allar áætlanir og ráðagerðir úr skorðum. Ólafur
Hákonarson átti það ekki fyrir sér að ríkja nokkurn tíma í raun
og veru yfir löndum sínum. Til þess entist honum ekki ævin,
því að hann veiktist hastarlega og andaðist aðeins 17 ára að
aldri hinn 3. ágúst 1387. Var það í Falsterbo á Skáni og bar dauða
hans svo brátt að höndum að móðir hans náði ekki að sjúkrabeði
hans, fyrr en hann var látinn, og var hún þó stödd í öðrum
kaupstað ekki langt frá Falsterbo.
Fráfall hins unga konungs, sem talinn var mesti efnismaður,
var hörmulegt áfall og var hann mjög syrgður í löndum sínum.
Þeir voru jafnvel til, sem ekki vildu trúa því að hann væri
dáinn og komust á kreik ýmsar sögur um að hann hefði horfið
með öðrum hætti. Svo lífsseigar voru slíkar sögur, að meira að
segja 15 árum eftir dauða Ólafs, var það sem fáeinir norskir
kaupmenn, er staddir voru suður í Prússlandi, rákust á mann,
sem þeim virtist að líktist mjög Ólafi konungi. Er þeir tóku að
ræða við hann, kom það á daginn, að hann þekkti furðu vel til
ýmissa atvika úr lífi Ólafs og styrkti það kaupmennina í trú
sinni. Þóttust þeir þarna hafa fundið Ólaf og töldu, að móðir
hans hefði í eigin valdagræðgi ætlað að ryðja honum úr vegi, en
hann sloppið undan og setzt að í fjarlægu landi. Maður þessi
kvaðst líka vera Ólafur konungur, og skrifaði hann Margréti bréf
og krafðist ríkisins af henni. Margrét krafðist þess aftur á móti
að hann yrði framseldur henni og varð það úr. Kom þá í ljós við
rannsókn, að maður þessi var sonur konu, er verið hafði fóstra
Ólafs um skeið, en son þenna hafði hún alið suður í Bæheimi. Var
þessi falski Ólafur síðan dæmdur samkvæmt gildandi lögum og
brenndur á báli.
Eftir dauða Ólafs konungs, kom bezt í ljós, hvað í Margréti
Godasteinn
83