Goðasteinn - 01.06.1974, Síða 87
Albreckt konungur þóttist öruggur um sig. Óttaðist hann
Margréti ekki hót og nefndi hana ýmsum hæðilegum nöfnum,
m.a. kónginn buxnalausa og öðru álíka. Er hann lýsti stríði á
hendur henni, sendi hann henni hverfistein, sem notaður var til að
skerpa nálar og taldi með því að henni bæri fremur að sitja við
hannyrðir en að grípa til vopna. Albreckt safnaði liði, er að
mestu var þýzkur leiguher.
En Margrét dró saman lítinn, en mjög dugandi her norrænna
inanna. Orrustan milli þeirra stóð í fcbrúar 1389 nálægt Falköbing
og þurfti þar ekki lengi að bíða úrslitanna. Albreckt konungur,
sem taldi sér sigurinn vísan, lét riddara sína gera áhlaup yfir
mýrlendi eitt, sem var illa frosið. Sátu hestar þeirra því brátt
fastir og áttu þá liðsmenn Margrétar auðvclt með að ráða niður-
lögum Þjóðvcrjanna. Endaði bardaginn með algjörum ósigri
Albreckts og var hann ásamt syni sínum og mörgum öðrum tek-
inn til fanga. Launaði Margrét konungi ýmsar mótgjörðir, lét færa
hann í búning hirðfífls, setja á hann langa skotthúfu og hafði á
honum sýningu. Sigraðir andstæðingar fengu að kaupa sig lausa
gegn góðu gjaldi, nema konungsfeðgarnir, sem settir voru í varð-
hald.
Með þessum atburði var Margrét orðin drottning )dir allri
Svíþjóð, nema Stokkhólmi, er Þjóðverjar réðu yfir. Stóð svo í
allmörg ár, en að síðustu fór það svo að Albreckt var keyptur
laus úr haldi gegn því að höfuðborgin yrði gefin eftir. Sneri þá
þessi lánlitli og landflótta konungur heim til Mecklenborgar.
Á árunum, sem Margrét stóð í stímabraki um yfirráðin í Stokk-
hólmi, gcrðist það, að hún tók til sín fyrir fullt og allt systurdóttur-
son sinn, Bogislav, er var sonur Vertislavs konungs í Pommern og
Maríu, dóttur Ingibjargar Valdemarsdóttur, systur hennar. Þessi
ungi prins var í heiminn borinn 1382 og var því sex ára, er hann
kom til Danmerkur eftir sigurinn yfir Albreckt af Mecklenburg.
Honum var gefið nafnið Eiríkur af tilliti til Svía. Hann var sem
áður sagði gerður konungur í Noregi og viðurkenndur síðan sem
ríkiserfingi í Svíþjóð og Danmörk. Margrét fór hins vegar með
öll völd í löndunum og stjórnaði þeim af röggsemi og myndarskap
og nánast sem þau væru eitt ríki. Hún fékk Eirík hylltan sem
Goðasteinn
85