Goðasteinn - 01.06.1974, Side 95
miðað er við miðju bogans og niður á neðri brún klyfberafjala.
Þeir mynduðu venjulega krappt horn við bogann að ofan. Yfir-
leitt voru þeir kringlóttir, gerðir úr kvistalausri furu eða öðru
traustu efni. Beinklakkar voru nokkuð algengir. Hef ég séð þá
úr stórgripslegg, úr hvalbeini og úr hreindýrshorni. Miðklakkur
á klyfbera var ýmist ferstrendur eða sívalur, alltaf mjórri um
miðju og oft með gati.
Víða voru klyfberabogar smíðaðir úr tveimur hlutum, settir
saman um miðju mcð geirneglingu og íbognum járnspöngum fram-
an og aftan á boganum. Byggðasafnið í Skógum á einn slíkan
klyfbera, gefinn af Hannesi Árnasyni frá Hrólfsstaðahelli á Landi.
Smiðurinn var Þórður Jónsson hinn blindi á Mófellsstöðum í
Skorradal. Faðir minn, Tómas Þórðarson, minnist þess, að hann
sá klyfbera með því lagi, smíðaðan af Jóni Sveinbjarnarsyni á
Ásólfsskála undir Eyjafjöllum um 1900. Jón var kunnugur í Húna-
þingi og Borgarfirði og kann að hafa haft fyrirmyndina þaðan.
Klyfberi án gjarða er enginn klyfberi. Raunar mun hafa verið
talað um óreiddan klyfbera, en tíðast var talað um alreiddan
klyfbera, og var hann þá búinn til þess að leggja hann á reiðings-
hest. Gerð klyfberagjarða er kapituli útaf fyrir sig, sem hér verða
lítil skil gerð. Klyfberagjarðir voru ýmist hárgjarðir, ullargjarðir,
hampgjarðir eða melgjarðir, gátu enda verið af fleiri efnum gerð-
ar. Hafiiði Guðmundsson í Búð í Þykkvabæ sagði mér, að mel-
gjarðir hefðu verið allra gjarða beztar, svo ófúagjarnar og síður
hætt við, að hestar yrðu kviðsárir undan þeim. Sama sögðu gamlir
Skaftfellingar austan sands, sem gerðu mikið af gjörðum úr
sumtagi melróta.
Klyfberagjarðir voru ýmist þverbrugðnar eða oddabrugðnar.
Jón Árnason í Lækjarbotnum í Landsveit talaði um valbrugðna
gjörð og gaf byggðasafninu í Skógum eina slíka, og er verklagið
afbrigði af oddabrugðinni gjörð. í gömlu máli koma fyrir orðin
hálfodduð gjörð og alodduð gjörð. Gísli á Búlandi lét Skóga-
safni í té tennta oddagjörð. Mála sannast er, að útfæra má
mynstur og litasamsetningu oddagjarða og annarra gjarða á nokk-
uð fjölbreytilegan hátt.
Klyfberagjarðir voru þrjár, brjóstgjörð, miðgjörð og náragjörð,
Goðasteinn
93