Goðasteinn - 01.06.1974, Side 96

Goðasteinn - 01.06.1974, Side 96
1 Mynd. 111.: Klyfberi með hleypiklökkum Sigurjóns í Hvammi. Ljósm. Vigfús L. Friðriksson. festar við klyfberafjalir með gagntökum úr ól eða snæri. Gagn- tökin voru dregin upp um göt á klyfberafjölunum og fest þar rneð hnúti ef um snæri var að ræða, en ól var oft fest þar með trétyppi eða sauðarköggli, sem smeygt var í þar til gerða æs á ólarendanum. Á hinum enda klyfberagjarðanna var sylgja fest með ól eða spotta, er nefndist sylgjutak. Klyfberasylgjur voru tvígataðar eða eingataðar, úr hrútshorni eða hvalbeini, stundum voru þær hringur úr járni, kopar eða afsöguðu hrútshorni. Fleiri efni komu þar til greina. Þær voru tengdar við móttök á klyf- berunum, þegar girt var á. Móttök voru fest með sama hætti við klyfberafjalir og gagntök og gerð úr sömu efnum. Sjaldgæft var, að allar klyfberagjarðir væru girtar sama megin á hrossi. Brjóstgjörð og náragjörð voru að jafnaði girtar sama megin og miðgjörð girt hinum megin frá. Klyfberi með öllum gjörðum girtur sama megin nefndist einyrki eða kellingaklyf- beri. Maður, sem vann einn að því að girða á, hélt í klakkinn til mótvægis, er hann herti á gjörðinni. í heybandsflutningum þurfti að laga reiðinga í hverri milliferð. Dæmi eru þess, að reiði væri hafður við klyfbera. Einkum þótti það gott ef fara þurfti með klyfjahest um brattlendi. Á seinni hluta 19. aldar kemur til sögunnar á Norðurlandi ný klyfberagerð, klyfberar með svonefndum hleypiklökkum. Ekki er 94 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.