Goðasteinn - 01.06.1976, Qupperneq 7
brautryðjandi í mörgu. Hann mældi dýpt á Papós til innsiglinga
og fyrir hans framkvæmdir komst verslun á Papós. Eiríkur sonur
séra Eiríks og Vilborgar var bóndi í Bæ í Lóni og víðar. Þórdís
dóttir þeirra var kona Ketils í Volaseli. Systkinin þóttu manndóms-
fólk, og eru margir Lónmenn frá þeim komnir.
f annað sinn giftist Vilborg Björnsdóttir Þorsteini ráðsmanni
sínum og bjó á eignarjörð sinni í Bæ og eignaðist þrjú börn með
honum, sem ættir eru frá komnar. Eiríkur annar var afi Þóru
tengdamóður minnar og bjó á Smyrlabjörgum. Seinni kona hans
var Þóra dóttir Jóns sýslumanns í Hoffelli. Um séra Eirík Rafn-
kelsson má segja: Forlögunum fresta má, fyrir þau kemst þó eng-
inn.
Björn Brynjólfsson á Reynivöllum var alltaf nefndur hinn ríki.
Miklar voru þó raunir hans, þegar þrjú börn hans voru dæmd á
Alþingi, tveir synir hans og dóttir, sem lentu í blóðskömm, bræð-
urnir sendir út og áttu ekki afturkvæmt, en systir þeirra var náðuð,
talin ekki eins og fólk er flest. Árni og Guðmundur synir Björns
drukknuðu í sjó við strendur Suðursveitar.
Margt vel gefið fólk er hér frá Brynjólfi komið og margir niðjar
hans hér í sveit á öllum heimilum. Niðjar hans eru einnig margir
á Mýrum og um alla Austur-Skaftafellssýslu, þó aðrar ættir hafi
blandast þar inn í.
Seinni kona Guðmundar Brynjólfssonar var Margrét Vigfús-
dóttir. Þau áttu þrjú börn, Daða, Hólmfríði og Elínu, sem var
lengi hjá séra Þorsteini Einarssyni á Kálfafellsstað og Torfhildur
Hólm minnist á í þjóðsagnabók sinni.
Öll börn Ingunnar ömmu minnar í Odda urðu mannskaparmenn
og ólöt til allrar vinnu. Móðir mín sagði að Ingunn móðir sín
hefði sagt að sá, sem ekki nennti að vinna og sæti iðjulaus, sæti
v.ndir 7 púkum og hampaði þeim áttunda. Guðrún hin fróða, sem
var um tíma vinnukona á Fagurhólsmýri hjá Ara Hálfdanarsyni
móðurbróður mínum, sagði að einn hirðingadag í miklu sólskini
hefði vantað reipi. Ari fór léttklæddur heim að kasta úr böggum
og hljóp við fót sér, kom aftur með reipi og gott kaffi að hressa
fólkið. Guðrún sagði við hann: „Ertu ekki þreyttur, ég sá þú
hljópst alltaf heim?“ ,,Já, ég var að reyna mig við hundinn, sem
Goðasteinn
5