Goðasteinn - 01.06.1976, Blaðsíða 26
hlutinn var hlóðareldhús. Hlóðirnar voru í sérstakri strympu-
byggingu út úr norðvesturhorninu og hagað svo til að reykurinn
átti aðe.ins leið beint upp um strompinn. Var hurð á strympunni
framan við hlóðirnar.
I bæjardyrunum var moldargólf en jafnan vel þrifað og sópað.
Þarna hafði mömmu alltaf langað til að afþilja stofuhús, en aldrei
varð af því, kannski mest fyrir það að húsið var öðrum þræði
geymsla. Tvær stórar kistur voru sinn við hvorn gafl. I þeim voru
geymd matvæli svo sem kaffi, sykur, grautarefni og fleira. Á vest-
urveggnum héngu spariföt og á austurvegg vinnuföt.
Vestur úr bæjardyrum var baðstofan, fjögra rúma lengd, þiljuð
með panel að innan og með níu rúðu glugga á framhiið. Þarna
var allt vel um búið að þeirrar tíðar hætti, salúnsofnar ábreiður
yfir rúmum og gólfið hvítskúrað. Það var þvegið með sandi tvisvar
í viku og rúmstokkarnir einu sinni í viku (á laugardögum). Bar
þetta alltaf með sér fallegan blæ, þó ekkert væri þvottaefnið
annað en sandur og þvottavatnið kalt.
Heima var vel búið eftir því sem þá þótti. Ég man aldrei cftir
öðru en til hafi verið saltaður, súr og reyktur matur allt árið og
vel það. Á sunnudögum var alltaf borðað kjöt til miðdegisverðar
og einhver kjötmatur var í miðri viku, oft saltaður fugl eða söltuð
svið og hrossakjöt eftir að farið var að nota það til matar. Það
var talsvert notað en þó aldrei á sunnudögum.
Afmælið hans pabba föstudaginn í átjándu viku sumars var
mesta matarhátíð ársins og hlökkuðum við börnin og allt heimilis-
fólkið mjög til þess. Þá var vel skammtað hangikjöt til miðdags-
matar og síðdegis var drukkið súkkulaði með pönnukökum, klein-
um og jólaköku. Var þá borðað og drukkið af hjartans lyst. Á
þerridögum kom mamma og einhver henni til hjálpar með þetta
út á engjar eða þangað, sem verið var við heyskapinn, annars var
farið heim í hressinguna, þó ekki væri venja að sóa tímanum að
óþörfu. Um kvöldið átti hver maður vísa fulla skál af sætsúpu
með rjóma út á, ásamt afgangi af hangikjöti og öðru góðgæti og
þar með var þessi góði dagur liðinn og lét bíða eftir sér í heilt ár.
Skyri var safnað á sumrin, því sem ekki þurfti daglega að nota
í heimilið. Það var síað mjög vel. Því var drepið ofan í kagga og
24
Goðasteinn