Goðasteinn - 01.06.1976, Blaðsíða 16
ur. Börn Guðmundar og Snjólaugar voru 5, Jón, er áður nefndur.
Hin voru: Höskuldur, sem fluttist til Vopnafjarðar og giftist þar.
Sonur hans, Jón, varð eftirlitsmaður Landssímans um Austurland
til Hornafjarðar. Sveinn sonur hans býr á Höfn og er eftirlitsmað-
ur Landsímans, myndarmaður. Nikulás bóndi á Breiðumýri í
Vopnafirði. Sonur hans er Jón læknir í Reykjavík, mjög vinsæll.
Guðmundur fluttist til Ameríku um síðustu aldamót með konu
sinni og dóttur á fjórða ári, Vigdísi, sem enn lifir og býr með
syni sínum, Georg Hansson, í Chicago í Bandaríkjunum. Hann var
kennari við menntaskóla þar í borg, nú vfirbókavörður og vinnur
að doktorsritgerð, hefur mikið að starfa við háskóla. Fyrir þremur
árum kom hann hingað að Skálafelli. Var tvisvar áður búinn að
koma til íslands, fyrst kynnisferð að Árnanesi, þar sem móðir hans
er fædd og hún þá með honum. Öðru sinni var hann um vetur
kennari í Keflavík hjá varnarliðinu. Við ræddum margt saman,
og þurfti ég margs að spyrja um frændfólk og aðra vini í Kanada.
Leysti hann greiðlega úr. Erindi hans hingað var að taka mynd
af Skálafelli, þar sem afi hans var fæddur og langafi og langalang-
afinn bjó í Skálafellsseli. Eftir þrjár vikur fékk ég bréf frá hon-
um og ættartölu hans svo sjá mætti, hvort við værum sömu ættar.
Svo var að vísu, því móðir hans og móðir mín voru þremenningar
og þó enn meira skyld móðir hans föðurætt minni. Síðan hefur
hann skrifað mér mörg bréf full af fróðleik, bænum og blessunar-
óskum, sem hafa glatt mig og vakið til andlegrar blessunar. Nú
er hann að koma upp húsi út á landsbyggðinni á fögrum stað og
með hollu lofti að anda að sér og skírði það Skálafell. Tvær
myndir hefur hann sent mér af Skálafelli sínu í vesturheimi. Þang-
að fer hann með móður sinni og vinafólki til að hvíla sig frá
störfum. Þessi fjarlægi frændi minn og vinur er búinn að senda mér
fjölda af myndum og myndabókum frá heimalandi sínu. Hann er
mikill Islandsvinur og les allar íslenskar bækur, sem hann kemst
yfir, þó aldrei á íslenskum skóla, en þegar hann var að heimsækja
Sigríði ömmu sína í Kanada, þá talaði hún íslensku við hann. Það
er gott að lesa bréfin hans, á þeim er furðu góð íslenska og hann
segir að sér þvki gott að lesa mín bréf.
Þriðja barn Guðmundar og Snjólaugar ljósu minnar var Ástríð-
14
Goðasteinn