Goðasteinn - 01.06.1976, Blaðsíða 24
ófúin. Maðurinn, scm sýndi þcssi hús, sagði að viðurinn, sem í
þau var hafður, hefði verið meðhöndlaður á alveg sérstakan hátt
til þess að hann fúnaði ekki. Trén, sem í þessi hús voru notuð,
höfðu verið valin allmörgum árum áður en smíði húsanna hófst
og toppurinn höggvinn af þeim. Þannig voru þau látin standa þar
til nokkru áður en smíði hússins hófst og urðu við þetta miklu
harpixmeiri og harðari en önnur tré.
Það eru því líkur til að sá viður, sem fluttur var til landsins
á söguöld, hafi einmitt verið þess konar viður, því vel gátu ein-
staka höfðingjar hafa haft metnað til að koma upp húsi, sem
þeir ætluðust til að sýndu komandi kynslóðum að þar hefði höfð-
ingi aflað efnisins.
Þetta gæti komið vel heim við Flosa. Hann var í Noregi yfir
vetur nálægt miðjum öðrum tug 11. aldar, og dvaldi hjá Eiríki
jarli, sem gaf honum skip að skilnaði.
Það er því ekkert sem mælir á móti því, að jarl hafi leyft Flosa
að velja tré í sínum skógi til að toppstífa og fengið honum vanan
mann til verksins og hann hafi svo farið að sækja þessi tré þegar
tími var til kominn. Vegna þcss hvað dýrt var að flytja vörur
milli landa, hefur Flosi látið höggva viðinn til áður en honum
var komið fyrir í skipinu, en það hefur verið seinunnið, vegna
hörku viðarins. Það gæti verið ástæðan til þess að hann varð
síðbúinn.
Trúlegt er að skipið, sem jarl gaf Flosa hafi verið allgott, en
varla hefur hann látið smíða það gagngert fyrir Flosa, og er
líklegt að það hafi verið orðið allmargra ára. Það getur því komið
heim, að það hafi verið orðið lélegt, þegar Flosi lagði út með
viðinn, því þá hafði það orðið að þola veður margra vetra frá
því að Flosi sigldi því fyrst heim í Hornafjörð.
Þau tré, sem Flosi fékk í Noregi verða ekki til vitnis kvödd,
um það, hvort þau hefðu verið meðhöndluð á þann hátt að þau
fúnuðu ekki, cn fróðlegt væri að vita hvort ekki finnst meðal
þess elsta af húsavið, sem til er á söfnum hérlendis, eitthvað, sem
komið er úr toppstýfðum trjám.
Kvískerjum 27. jan. 1976
S. B.
22
Goðasteinn