Goðasteinn - 01.06.1976, Blaðsíða 41
]ón R. Hjálmarsson:
Stormasöm ævi á stóli biskups
Það hvíldi vissulega hátíðarblær yfir Skálholtsdómkirkju sunnu-
daginn 23. ágúst 1674, eða fyrir liðlega þrcnt öldum. Þenna dag
vígði sem sé meistari Brynjólfur biskup Sveinsson fyrrverandi
sýslumann í Borgarfjarðar- og Mýrasýslu, Jón Vigfússon að nafni,
til biskups á Hólum í Hjaltadal, og skyldi hann taka við embætti,
þegar þáverandi biskup þar, Gísli Þorláksson, léti af því eða
félli frá. Ekki er að undra, þótt kirkjugestum ýmsum hafi þótt
mikið til koma þessarar athafnar í Skálholti, þar sem þarna fór
fram fyrsta biskupsvígslan hér á landi í gjörvallri sögu þjóðarinnar.
Var því þarna um einstæðan og hátíðlegan merkisatburð að ræða,
sem vafalaust hefur verið lengi í minnum hafður.
En heldur hnykkti mönnum við, er meistari Brynjólfur upphóf
rödd sína í vígsluræðunni og lagði út af þeim orðum ritningar-
innar, þar sem segir: „Hver sem ekki kcmur inn í sauðahúsið
gegnum dyrnar, sá er þjófur og morðingi.“ En hvað sem um
þenna sérkennilega vígslutexta má segja eða hugsa, þá er það
engu að síður staðreynd, að biskupsvígslan fór fram og hinn
nývígði varabiskup reið að svo búnu heim til bús stns að Lcirá í
Borgarfirði og beið þess að Gísli biskup Þorláksson á Hólum
legði upp laupana. Þessi vígsla og embættisframi gaf honum að
vísu engar tekjur, áður en hann tæki formlega við embætti, en
það kom ekki svo mjög að sök, þar sem efni voru mikil fyrir.
Einnig var maðurinn búhöldur góður og útsjónarsamur fjárafla-
maður, enda á léttasta skeiði, aðeins þrjátíu og eins árs að aldri.
En hvernig mátti það vera að Brynjólfi biskupi væri svo þungt
í hug við vígslu þessa varabiskups til Hóla, að hann veldi slíkan
Goðasteinn
39