Goðasteinn - 01.06.1976, Blaðsíða 29
pakka af smákertum og mér lítil spil, en bræðurnir fengu stór
spil saman, en ekki fengum við að spila á aðfangadagskvöld. Til
matar var kjötsúpa og borðað snemma um kvöldið. Seinna feng-
um við kaffi og jólabrauð með. Þcgar allir voru háttaðir, las
pabbi jólalesturinn á nærkiæðunum framan á rúminu, og hefur
það víst verið gamall siður. Enn í dag sé ég þetta kvöld í ævin-
týraljóma.
Ljós var alltaf látið loga á jóianóttina og pabbi las jóladags-
lesturinn á nærklæðum á jóladagsmorguninn og síðar um daginn
las hann Jónsbókarlestur. Á jóladagsmorgun fengum við kaffi og
vel með af jólabakstrinum. Að loknum morgunverkum um kl.
10-11 fékk hver heila flatköku og kæfu- og lundabaggasneið með
og svo jólagrautinn, sem var alltaf grjónavellingur með rúsínum.
Ekki var svo haft ncitt matarkyns fyrr en um kvöldmat, en allir
áttu afgang af mat og kaffibrauði, sem hægt var að renna í eftir
vild.
í kvöldmat á jóladag var skammtað háift kindalæri, stundum
vöðvabiti af reyktu nautakjöti eða hryggjarliður af reyktum sauð
og svo rif af vænni síðu, hálfur saltaður bringukollur og sneið af
pottbrauði. Sumir áttu eftir bita af jólamatnum, þegar kom fram
á þorra.
Á jólakvöldið var spilað, og yfirleitt var mikið spilað um jólin
hjá okkur og fram eftir öllum vetri ef gest bar að dyrum, sem oft
bar við. Á sunnudögum var oft spilað, þó ekki væru neinir gestir
á ferð. Fólkið þarna í nágrenninu dró sig sarnan um hátíðir og
skcmmti sér eftir bestu föngum. Þá var æði fjölmennt í Stcina-
hverfinu. Einu sinni man ég að stór hópur af ungu fólki og börnum
fór á nýársdag yfir ísi lagðan Holtsós suður á fjöru og var farið í
leiki. Ríkti mikil ánægja með fcrðalagið.
Á gamlárskvöld var hagað til svipað og á aðfangadagskvöld
með mat, oft skammtað saltkjöt, og pabbi las tilheyrandi lestur
með sama fyrirkomulagi gamlárkvöld og nýársdag, einnig svipað
með mat á nýársdag, skammtaður hálfur kindabógur af reyktu
kjöti og annað að sama skapi.
Svo liðu blessaðar hátíðirnar. Saltkjöt var haft á þrettándanum
og kaffibrauð með kaffinu um kvöldið. Þá voru spiluð út jólin.
Goðasleinn
27