Goðasteinn - 01.06.1976, Blaðsíða 38
brennu: „Fórst mikið góss af öllu tægi og margir dýrgripir.“ Séra
Guðbrandur Jónsson í Vatnsfirði lýsir brennunni á þessa leið í
annál sínum: „Brann allur bærinn á Hvoli austur og allt hvað
þar var inni, þann 20. Octobris, en fólk komst út. Fórst mikið góss
og gersemi, dýrgripir og skjöl, er þar inni brunnu, og jarðaskilríki.
Hafði komið af uppruna þeim að vinnukona fór illa með ljós í
skála.“ Þorlákur Markússon á Sjávarborg í Skagafirði lætur svo
um mælt um brunann í annál sínum: „Var haldið þar mundi hafa
brunnið í góssi og gripum mcð sjálfum staðnum að verðaurum
til 10 hundraða hundraða." Aðrir annálahöfundar telja tjónið
hafa numið meir en 9 hundruðum hundraða. Virðist því ekki of í
lagt að telja það hafa numið um 90 milljónum króna að verðgildi
nútíðar. Hitt verður svo ekki tölum talið hvert tjón Hvolsbrenna
hefur unnið íslenskum bókmenntum og íslenskri sögu í eyðingu
handrita og skjala.
Katrín Erlendsdóttir hélt fram að vera Katrín ríka eftir brun-
ann, fyrir því sáu jarðeignir hennar. Mikið átak hefur það verið
að húsa Stórólfshvol að nýju, efna til húsbúnaðar og fata fjöl-
skyldu og heimilisfólk. Ekki er að efa að vinir og vandamenn
Katrínar hafa þar í einhverju hlaupið undir bagga. Jón Guð-
mundsson á Ægissíðu greinir frá því í ættartölum sínum að
smiður við bæjarbygginguna hafi verið Ólafur smiður sonur Guð-
mundar Péturssonar á Reyni í Mýrdal, Þorleifssonar prests á
Breiðabólsstað. Bjuggu niðjar Ólafs að Langagerði í Hvol-
hreppi. Sú saga á að vera frá seinni árum Katrínar að sjó-
maður við Landeyjasand gerði það áheit að minnast Katrínar ríku
cf hann fengi flakandi lúðu á öngul sinn í fiskiróðri og færa henni
ruðurnar af lúðunni. Hann veiddi mikla lúðu í róðrinum og sendi
Katrínu ríku hausinn og rafabeltin af henni sem áheit. Hún tók
við því með þessum orðum: „Flesta álítur nú guð gustukamenn.“
Fitjaannáll greinir þannig frá andláti Katrínar við árið 1693:
Á þessu ári andaðist Katrín Erlendsdóttir á Stórólfshvoli, Ás-
mundssonar, aldurs 81 árs, ein með helstu konum hér á landi upp
á höfðingsskap og skörugleika ásamt útlátum við ríka og fátæka.
Katrín fóstraði sonarson sinn, Þórð, son Jóns Vigfússonar Hóla-
biskups og lagði við hann ástríki. Hann minntist ömmu sinnar og
36
Goðasteinn