Goðasteinn - 01.06.1976, Qupperneq 46
hafði þá í höndum magisternafnbót, sem kanslarinn hafði útvegað
honum, og auk þcss bréf konungs til Brynjólfs biskups um að
vígja Jón þá þegar til varabiskups á Hólum og náði það brátt
fram að ganga, svo sem sagði hér að framan.
Næsta áratug eftir að Jón Vigfússon, fyrrvcrandi ssýlumaður,
hiaut vígslu sem varabiskup á Hólum, sat hann um kyrrt á búi
sínu á Leirá og vegnaði vel, enda var maðurinn duglegur, vel
stæður og útsjónarsamur í besta lagi. Loks gerðist svo það að
Gísli biskup Þorláksson á Hólum andaðist árið 1684. Beið Jón
þá ekki boðanna, hcldur reið í skyndi norður og hugðist taka við
cmbætti og allri stjórn á Hólastað.
En þegar norður kom mætti honum ný og óvænt andstaða,
því að þá höfðu sextán helstu kennimenn biskupsdæmisins bund-
ist samtökum um að neita að taka við honum scm yfirmanni sínum
og afsegja hann sem biskup. Sömdu þeir skjal og sendu konungi,
þar sem þeir mcðal annars ásaka biskup um galdra og fordæðu-
skap, óleyfilega verslun og fleiri sakir. Jón lét ekki sinn hlut og
stóð fast á rétti sínum. Settist hann að um kyrrt á Hólum og var
þar þann vetur í litlu yfirlæti og tók síðan við staðarforráðum í
fardögum vorið 1685 af erfingjum Gísla biskups.
Það sama sumar kom bréf konungs til Kristófers Heidemanns,
landfógeta, sem þá var nýtekinn við embætti, og til Þórðar Þor-
lákssonar, Skálholtsbiskups, þess efnis, að þessir fyrirmenn skyldu
tilkalla með sér nokkra presta til að rannsaka kærumál norðan-
klerka á hendur Jóni biskupi Vigfússyni. Gerðu þeir svo sem
fyrir var lagt og kvöddu saman fjóra prófasta og þrjá presta og
héldu með þcim fund um málið á Þingvöllum hinn 3. og 4. júlí
sama ár. Þar mættu og Hólabiskup og sumir af andstæðingum
hans, en aðrir höfðu þá sæst við hann og fallið frá ákærum sínum.
Fyrsta ákæruatriðið var um galdra og var þar vitnað til fram-
burðar skipstjóra þess, er strandað hafði skipi sínu á Landeyja-
fjöru. Jón biskup svaraði því atriði með því að vitna til eiðs
síns fyrrum, þar sem hann hafði svarið af sér allan galdur og for-
dæðuskap. Önnur ákæra var vegna óleyfilegrar tóbaksverslunar,
sem meðal annars hafði leitt til þess að hann missti sýslumanns-
cmbættið á sínum tíma. Einnig báru andstæðingar hans það, að
44
Goðasteinn