Goðasteinn - 01.06.1976, Side 95
þar sem hitaveita er í þessu ágæta sæluhúsi. En þar scm hópur-
inn var stór og skálinn fremur lítill, mátti heita að hvert rúm
væri skipað. Kom þá brátt upp ægilegt vandamál. Þjóðverjinn
stutti og þrekvaxni, sem lítt hafði tekið þátt í gleðskap og galsa
kvöldsins, hnippti nú í mig og spurði alvarlegur í bragði, hvar
hann ætti að sofa. Nú, auðvitað á ioftinu hjá okkur karlmönn-
unum, svaraði ég samstundis, því að ekki var í annað hús að
venda. Nei, og aftur nei, svaraði hann ákveðinn. Kvaðst hann
hafa borgað fyrirfram fyrir einkaherbergi með heitu og köldu
vatni á öllum gististöðum og hann léti ekki troða svo á rétti sín-
um, að hann tæki í mál að sofa í fjöldaflatsæng innan um hóp
hrjótandi manna á hanabjálka þessum. Nú var úr vöndu að ráða.
Rcyndi ég að tala um fyrir karli með ýmsu móti, cn ekkert
virtist ætla að duga til að fá hann til að leggjast til svefns. Loks
hugkvæmdist mér að stinga upp á því, að hann svæfi í aftasta
sætinu í bílnum. R.aunar hafði bílstjóri okkar ætlað að vera þar
yfir nóttina, en hann gaf það strax eftir, er ég skýrði frá vand-
ræðum mínum. Benti ég Þjóðverjanum á það, að raunar mætti
líta á bílinn sem einkaherbergi, þegar ekki væru þar aðrir en hann.
Féllst hann á þetta eftir nokkrar vanga.veltur og var sæmilega
sáttur við ástandið, þótt hvorki hefði hann heitt eða kalt vatn
í þessari vistarveru. Tók hann að verða taisvert sanngjarn og
þægilegur, þegar þetta var klappað og klárt, og benti mér meira
að segja á það, að allir yrðu að taka nokkurt tillit til aðstæðna
á háfjöllum og ekki mætti gera þar sömu kröfur og í byggð.
Samþykkti ég það vitaskuld fúslega og fékk hann til að koma inn
í eldhús og drekka te. Einnig fann ég handa honum nokkur auka-
teppi, svo að hann svæfi betur í köldum bílnum. Næsta dag
héldum við ferðinni áfram í dýrlegu veðri. Brátt lágu jöklar að
baki og tók að haila norður af.
Við skoðuðum það markverðasta á Norðurlandi og var ferðin
hin ánægjulegasta í alla staði. Bar nú meira að segja ekkert á
hinum nöldursama vini mínum um sinn, enda hafði hann ekki
yfir neinu að kvarta. Við máltíðir virtist hann njóta þess alveg
sérstaklega að borða kjúkling, nautasteik eða eggjaköku, meðan
við hin snæddum steiktan fisk, soðinn lax, lambakjöt eða eitthvað
Goðasteinn
93