Goðasteinn - 01.06.1978, Side 9

Goðasteinn - 01.06.1978, Side 9
Mikill og vel húsaður bær var á Sigríðarstöðum, að mestu frá tíð Kristjáns Arngrímssonar. Þrjár stærðar burstir voru þar fram að stétt, stofuburst, bæjardyraburst og skemmuburst. Vindhani útskor- inn var á skemmuburstinni. Vísaði hann áttina og hjóðaði hátt í veðrum. Steinhlaðin stétt var framan við húsin og hlað framan við stéttina. Þar var stór hestasteinn og járnhringur í honum. Hann var nefndur túnsteinn. Upp á hann steig kvenfólkið til að stíga í söðul. E.inu sinni var bundinn við steininn mannýgur boli með fjórföldu reipi en hann setti sig þá í hnút og sleit reipin. Nautið var frá Grenjaðarstað og hafði verið í hagagöngu í Eyjafirði. Börnin áttu fótum fjör að launa upp á viðarköst. Maður var með nautinu og var í smiðju með Þorsteini Sæmundssyni klénsmið. Fóru þeir að reyna að handsama nautið, sem sló Þorstein og bjó hann að meiðsli nokkurn tíma. Bola var komið af sex mönnum til Grenjaðarstaðar og var svo ódælt að það þvætti þeim í lækinn. Mikil hestarétt var við skemmuna hlaðin úr stærðar grjóti og stór grind fyrir. Þar voru hestar látnir inn ef gestir voru svo margir að hestasteinninn hrökk ekki til að binda við hesta þeirra. Smiðja var áföst við skemmuna, notuð allan ársins hring. Skúli smíðaði sjálfur alla ljái og hestajárn og hjá Kristjáni föður hans höfðu margir lært smíðar. Loft var í skemmunni. Geymdi fólkið kistur sínar þar uppi en söðlar, hnakkar, klyfberar, reiðingar og amboð voru niðri. Þar var einnig stór slá, sem öll reipi voru hengd á. Stofan var blámáluð innan, með blárri hurð og hornskápur all- stór í einu horninu, með rauðmáluðum listum á hornunum, mjög fallega og hurðirnar fallega málaðar, mjög vönduð og fögur smíði. 1 þessum skáp var geymt vandað leirtau og annar borðbúnaður. Silfu.rborðbúnaður var til í gamla búinu. Svo mikið var til af borð- búnaði að hann var oft lánaður í stórveislur, t. d. að Hálsi. Klæða- skápur var í stofunni, sem þá var óvenjulegt. Þar var einnig stórt skatthol úr fínum viði, dökkt að lit. Það var svo stórt að ekki þurfti að brjóta pils saman, sem voru lögð þar í skúffur. Margar skúffur voru undir halllokinu. Skrifborð var í stofunni, einnig kommóða, borð og stólar og gestarúm. Bæjardvrnar voru víðar og stórar með uppgöngu á bæjardyraloft. Fremst í þeim var fiskasteinn og var komin ofan í hann stór laut af því að berja á honum fiskinn. Á bæjardyralofinu var komið fyrir Godasteinn 7
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.