Goðasteinn - 01.06.1978, Page 87

Goðasteinn - 01.06.1978, Page 87
af harðfiski og kakódós. Kjötdósirnar áttu að þjóna því hlutverki að vera pottar, þegar þær tæmdust. Ekki gerðum við uppskátt um fyrirætlanir okkar fyrr en daginn áður en farið var af stað. Sú var ástæða fyrir því, að ef gert hefði hlýindi og rigningu í upphafi ferðarinnar, töldum við tilgangslaust að leggja af stað, því þá hefði Skaftá undir Fögrufjöllum þegar orðið ófær gangandi mönnum, og ekkert orðið úr neinu ferðalagi, og þá væri betra að hafa aldrei á þetta minnst við aðra. En þar sem ferðin var nú ráðin, var ekki annað fyrir en að búa sig af stað og binda í bagga. Við nestið bættist hangikjöt og smjör frá Marínu, móður Runólfs, og steinolía á prímusinn. Marín stakk í pokann ullarlagði og sagði að gott væri að hafa hann, ef maður yrði sár á göngu, og kom hann mér í góðar þarfir síðar. Sömuleiðis fékk hún mér ullarsokka og vettlinga, þótti henni búnaður minn víst ekki vera beysinn. Sokkana á ég enn til minningar um hana. Báðir höfðum við bakpoka á grind eins og enn tíðkast, og hvíldi þunginn því á öxlum og mjóhrygg. Fatnaður okkar var venjuleg ígangsföt þeirra tíma. í bakpokana var látið nestið ásamt þurrum nærfötum. Ofan á pokana var tjaldið bundið ásamt tveim ullar- teppum vöfðum innan í vatnskápur okkar. Utan á pokana voru festir steinolíubrúsar og skór til vara. Tjaldsúlurnar notuðum við sem göngustafi, voru þær smíðaðar af Runólfi og voru með broddi að neðan. Björn í Holti, faðir Runólfs, reiddi okkur norður fyrir Galta á Síðuafrétti. Þegar þangað var komið, var stigið af baki og Björn kvaddur. Um stund stóðum við á hraunbrúninni og horfðum á cftir Birni þar sem hann fjarlægðist. í mér var hálfgerður hrollur við það sem framundan var. I fimm ár hafði atvinna mín verið sjómennska, og var ég því að mestu óvanur göngum. Óttaðist ég að verða of mikill dragbítur á Runólf, sem var að öllu vanari göngum. Það reyndist líka verða svo að gönguhraðinn miðaðist alltaf v.ið getu mína, en ekki Runólfs, á honum sáust aldrei nein þreytumerki. En nú varð ekki aftur snúið. I Holti höfðu bakpokarnir verið vegnir og voru þeir í upphafi ferðar 21 kg hvor. Voru þeir nú axl- aðir og þeim hagrætt og gangan hafin. Fyrsti áfangi var um hraunið vestan við Laka, vestan Lambavatns, austan Lyngfells og norður Goðasteinn 85
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.