Goðasteinn - 01.06.1978, Side 91

Goðasteinn - 01.06.1978, Side 91
Þegar við morguninn eftir höfðum gengið skamma stund, kornum við að jökulá, sem við í fyrstu töldum að vera mundi Skjálfanda- fljót, og áttum við þá að hafa það á hægri hönd og ganga með straumnum. En ekki höfðum við lengi gengið, er Runólfur vakti máls á því, að eitthvað væri bogið við þetta, því vatnið rynni á móti okkur. Drógum við þá upp kortið, settumst niður og fórum að hugsa. Við athugun á kortinu sáum við brátt að við mundum vera staddir við Jökulsá eystri, sem rennur til Skagafjarðar, og hafði því stefna okkar daginn áður verið alltof vestlæg. En nú höfðum við staðarákvörðun og samkvæmt henni tókum við nú austlæga stefnu í þá átt er við töldum Kiðagil vera. Leiðin lá upp á við og tók hjalli við af hjalla. Seinni hluta dags gerði bleytuhríð. Snjó festi þó lítið, nema þar sem snjóskaflar voru fyrir. Að lokum komum við þar sem lækir tóku að renna til norðurs eða norðausturs. Tókum við það ráð að fylgja rennsli þeirra, og kom- um þá innan stundar fram á dalbrún. Fórum við þar þegar niður. Þar var rigning. Tjölduðum á grasbala þar sem lækur rann, skipt- um um föt og urðum hvíldinni fegnir. Morguninn eftir, sem var sjöundi dagur ferðarinnar, fylgdum við vestari bakka lækjarins, sem smá óx eftir því sem neðar dró. Þegar leið á morguninn sáum við bæ austan megin árinnar og vissum þá að þetta mundu vera Tjarnir í Eyjafirði, því í Bárðardal er Mýri vestan megin í dalnum. En úr því sem komið var, héldum við áfram niður Eyjafjarðardal. Fyrsti bær, sem við komum að, var Hólsgerði vestan árinnar. Þar var kona úti að hengja upp þvott. Spurði hún okkur hvaðan við kæmum og hvort ekki hefði verið vont uppi á Sandi. Nesti okkar var nú orðið frekar ólystugt af raka og volki og um hádegi, þegar við snæddum af því í síðasta sinn, grófum við afganginn niður. Um kvöldið hittum við dreng, sem var að sækja kýr, fórurn heirn með honum og báðum um að selja okkur mjólk. Bærinn hét Jórunnar- staðir. Var okkur boðið inn og borin mjólk og brauð með hangi- kjöti ofan á: Fólkið vildi sjáanlega veita okkur sem best og ekkert fengum við að borga. Seinna um kvöldið komum við svo að Saurbæ og þó búið væri að loka símanum, sendi Daníel bóndi fyrir okkur skeyti suður að Holti, og þar með var ferðinni eiginlega lokið. Goðasteinn 89
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.