Goðasteinn - 01.06.1978, Síða 12
Vinda var yf.tr honum og vatnið híft þar upp í brunnfötunni. Vatnið
var borið í fjósið í kvarteli með járnhöldum. Inni í tröðinni í fjós-
inu var gríðarstór járnpottur. Voru kýrnar leystar og látnar ganga að
pottinum til að drekka. Oftast voru um fimm mjólkandi kýr og
ær í kvíum um hundrað.
Heyhlaðan við fjósið var mjög stór og aftur úr henni var hey,
sem nefnt var tos. Heygarður var enginn, þá sá Helga ekki fyrr
en hún kom á Suðurland. Hesthús var uppi á túni. Fjárhúsin voru
um allt tún, ærhús og lambhús. Þar var einnig geitakofi rétt við
túngarðinn. Beitarhúsin voru langt frá bænum á sléttri grund fyrir
neðan skóginn. Hiöður voru inn af hverju fjárhúsi og svo tos ef
hey komust ekki í hlöður. Voru húsin kölluð hnepphús og ærhús,
hvert við hliðina á öðru og alltaf gefið í hneppum á garðana, aldrei
borið í hripum nema handa kúnum og á hesthús. Stekkhús var á
beitarhúsunum. Þegar stíað var, var mjólkað á beitarhúsunum.
Kvíarnar voru torfkvíar í hlíðinni rétt ofan við túnið. Sauða-
maður fór á beitarhúsin snemma á morgnana og stóð yfir fénu,
þegar þurfti. Oft kom hann heim með rjúpnakippu að kvöldi. Einn
maður passaði ærnar, annar sauðina og sá þriðji lömbin.
Svo sagði gömul kona á Varðgjjá í Eyjafirði að húsbyggingarnar
á Sigríðarstöðum í tíð Kristjáns Arngrímssonar bæru svo af öðrum
byggingum þar um sveitir eins og húsin á Akureyri bæru af hús-
byggingum í sveitum yfirleitt.
Túnið var allt girt með grjótgarði að ofan og vestan en ekki
að framan, fram í mýrina. Vel um búið hlið var á túngarðinum
við heimreiðina. Sá var siður og viðhafði Skúli Kristjánsson hann
alla búskapartíð stna að í hvert sinn, er farið var til kirkju, oftast
ríðandi, þá tóku karlmenn ofan höfuðföt sín, er þeir riðu úr hlaði,
bændu sig og lásu bæn í hljóði berhöfðaðir. Höfuðfötin settu þeir
upp er þeir komu að hliðinu, er lokaði veginum frá hlaðinu út af
bænum. Riðið var fót fyrir fót að hliðinu en síðan látið spretta
úr spori.
Heyjað var í mýrinni framan við túnið. Segir Helga að hjá föður
hennar hafi unnið 11 eða 14 menn í tvo daga undir forystu Sæ-
mundar búfræðings við að hlaða garð til áveitu og við skurðgröft
í mýrinni. Var það með fyrstu áveituframkvæmdum. Skúli var
10
Goðasteinn