Úrval - 01.01.1979, Qupperneq 14
12
ÚRVAL
Tvennt kom okkur á óvart í þessari
niðurstöðu: Annars vegar að
„aðeins” 84% skuli lesa bókina, sem
valin er af mikilli nákvæmni og má
raunar teljast kjarni heftisins hverju
sinni. Hins vegar er að meira en
helmingur lesenda skuli lesa Urvals-
ljóðin, en það er örugglega mun
meira en gerist í þjóðfélaginu
almennt. Raunar komu þessi úrslit
okkur mest á óvart, og vonandi
megum við draga þá ályktun af þeim,
að ljóðaunnendum fari fjölgandi
heldurenhitt.
Röðin hjá föstum þáttum var þessi.
Viltu auka orðaforða þinn:
36% stundum.
24% sjaldan.
23% alltaf.
10% aldrei.
Völundarhús:
33% aldrei.
23% alltaf.
20% stundum.
14% sjaldan.
Veistu:
55% alltaf.
25% stundum.
11% sjaldan.
3% aldrei.
Krossgátan:
51% aldrei.
19% alltaf.
16% sjaldan.
6% stundum.
Gátur og orðaleikir:
51% alltaf.
30% stundum.
9% aldrei.
3% sjaldan.
Um þessi atriði má fara nokkrum
orðum. Gátur og orðaleikir féllu út
um svipað leiti og lesendakönnunin
birtist, en það kom til af því lindir
þær, sem við jusum af, voru þrotnar,
og ekki hafa fundist aðrar í staðinn.
Ef einhver er svo glúrinn að vita um
ónýtta sjóði af þessu tagi, væri okkur
þökk að fá ábendingu þar um. I
annan stað urðum við fyrir vonbrigð-
um með krossgátuna. Hvað hana
snertir höfum við satt að segja verið
dálítið íhaldssöm viljandi; höfum
verið lúmskt montin af því að vera ein
um að halda í formið, sem áður fyrr
var alls ráðandi með krossgátur. Það
væri raunar fróðlegt að fá til saman-
burðar samsvarandi könnun um þátt-
töku í krossgátum annarra blaða. En
— án þess að lofa nokkru — hvernig
litist ykkur á að fá krossgátu með
,,nýja” sniðinu — mynduð þið frekar
glíma við hana þannig?
Síðast í könnuninni var um það
spurt, hvort lesendur teldu blaðið
hafa staðið í stað, batnað eða versnað.
Þegar svörin fóru að berast, gerðum
við okkur grein fyrir, að þetta var
dálítið vond spurning. Við hvað átti
að miða? Lesendur okkar hafa margir
hverjir aðeins verið lesendur innan
við fímm ár — um 30% þeirra sem
svöruðu voru í þeim hópi. Aðrir hafa