Úrval - 01.01.1979, Blaðsíða 99
97
kom í ljðs, að allar þessar átta konur
höfðu fengið uppsölur rétt um það
leyti sem börnin komu undir.
Læknarnir, sem í hlut áttu, sögðu frá
þessu í British Medical Journal
nýverið, vilja eindregið koma þeirri
viðvömn á framfæri til allra pillu-
kvenna, að fái þær niðurgang eða
uppsölu, geti það gert nytsemi pill-
unnar að engu það tíðabilið út.
Stytt úr Health Digest.
HEYRNLEYSINGJA-
HUNDAR
Þótt Linda Davis sé heyrnarlaus, fer
þó ekki fram hjá henni þegar
hvítvoðungurinn hennar er að vóla.
Það er hundurinn hennar, hann
Banjó, tíu mánaða kynblendingur,
sem gerir henni viðvart. Banjó er einn
af fyrstu , ,heyrnleysingjahundum”
sem þjálfaðir hafa verið sérstaklega til
aðstoðar við heyrnleysingja. Hann
gerir Lindu viðvart þegar eitthvað
heyrist, sem sinna þarf, og vísar
henni veginn þangað sem hljóðin
berast — til barnsins, eða til dyra, ef
barið er eða dyrabjöllu hringt.
Hundar á borð við Banjó geta orðið
miklu fleiri en blindra hundar, því
þeir em fljóttamdari og mun fleiri
þurfa þeirra við heldur en blindra-
hunda.
Úr National Observer
VATN TIL VEISLUFLUGSINS
Margt fólk kennir svima og
slappleika, þegar það þarf að fljúga
lengi samfleytt í farþegaþotum
nútímans. Fæstir vita, að besta
lausnin er að þamba vatn — fyrir,
eftir, og meðan á flugferð stendur.
íþróttalæknir einn hefur rannsakað
þetta fyrirbrigði, og hann segir: ,,Að
sitja I þotu er líkast því að sitja í miðri
Sahara. Það er ekki bara að loftið sé
mjög þurrt, heldur er hringrás loftsins í
farþegaklefanum svo ör, að vökva-
tapið verður tiltölulega mjög mikið.”
Hann fór í þriggja tíma þotuferð með
hóp gltmumanna og viktaði þá fyrir
og eftir flugferð. Niðurstaðan var sú,
að hver um sig hafði lést um eitt kílo
að meðaltaii. En hann hefur líka
lausnina tiltæka: Við eigum að
drekka sex glös af vatni fyrir hverja
fimm tíma, sem við emm á lofti.
Endursagt úr Sunday Times
APPELSÍNU S AFI SLÆMUR
FYRIR TENNURNAR
Appeisínusafí — þetta sem við
köllum „óransdjús” getur farið ver
með tennurnar I okkur heldur en
gosdrykkir — sem fram að þessu hafa
ekki verið taidir neinn heilsugjafí.
„Rannsóknir okkar benda til þess,
að appelsínusafi sé verri fyrir
tennurnar en meira að segja cola-
drykkir”, sagði Mario S. Rodriguez,
aðsoðarprófessor í tannlækningum
við Louisiana State tannlæknaháskó-
anna í New Orleans, en lengi hefur
verið vitað að cola-drykkir em tönn-
unum ekki hollir.
Rodriguez sagði að þessi niðurstaða
hefði komið honum og félaga hans,