Úrval - 01.01.1979, Blaðsíða 38
36
ÚRVAL
hún greinilega miklu styrkari, svo ég
hélt aftur heim á hótelið.
,,Ohó!” sagði frammistöðupían,
þegar ég hlunkaðist þreytulega ofan i
sætið mitt við morgunverðarborðið.
,,Bara úti alla nóttina, ha? Svona eru
þessir karlmenn! Ég vissi að þú
myndir skemmta þér vel í Great
Yarmouth. Það hlýtur að vera gott að
vera dýralæknir.” ★
Ég hef alltaf svarið, að þegar ég væri orðinn nógu ríkur, ætlaði ég
að hætta kvikmyndaleik og snúa mér að leikhúsum, þvi ég tek fram
yfir allt annað að leika á sviði. En — þegar maður leikur í kvikmynd-
um, er raunin sú, að maður verður aldrei nógu ríkur — vill alltaf
meira.
Gregory Peck
Allir mennirnir mínir urðu æfir, þegar þeir voru kallaðir Herra
Davis — þótt þeir hefðu ekkert á móti því að lifa af laununum
minum.
Bette Davis
Mér er skrattann sama um alla gagnrýni. Flestir þeirra, sem fara á
bíó, eru milli 18 og 25 ára. Nærri allir gagnrýnendur sem ég veit um
eru milli 40 og 50 ára. Þarf ég að segja meira?
Clint Eastwood
Alltaf, þegar ég er spurð, hver sé fallegasta konan, sem ég veit um,
svara ég hiklaust Ava Gardner. En við erum líka sagðar mjög líkar.
Elizabeth Taylor
Guð hjálpi þeim manni, sem vill ekki kvænast fyrr en hann finnur
hina fullkomnu konu, og guð hjálpi honum ennþá meira, ef
hann skyldi finna hana.
Benjamin Tillett
Ef nokkuð er erfiðara en að venja sig af ósið, er það að sitja á sér að
segja öðrum hvernig maður fór að því.
Montana Legionnaire
Það eru ekki til ýkja margar gerðir af þorpurum. Allir hófu þeir
feril sinn sem óhlýðnir synir.
Kínverskt spakmæli.