Úrval - 01.01.1979, Side 65

Úrval - 01.01.1979, Side 65
MAMMA HEFUR SÍÐASTA ORÐIÐ 63 ætti að segja og hvað ætti ekki að segja og hvernig við ættum að brosa á meðan. Þegar svo gestirnir komu leit hún þerytulega út og þeir stungu upp á því að hún ætti að lyfta sér meira upp. Heimspeki mömmu var einskonar forlagatrú. Þegar pabbi missti vinnuna í blikkverksmiðjunni, sagði hún honum að þannig hefði það oröið að verða, hún hefði í langan tíma óttast að hann yrði fyrir slysi í vinnunni eða að einhver af stóru hundum forstjórans réðust á hann. Stundum þegar pabbi furðar sig á því hvernig hún viti að hlutirnir verði að verða, segir hún. „Manstu ekki elsku Ray, að einu sinni sagðirðu mér að þig hefði langað til að verða basaball leikari?” Pabbi kinkar kolli. Hann man það. ,Jæja, þannig gat það nú samt ekki orðið. Ef þú hefðir orðið það hefðirðu farið úr bænum og aldrei hitt mig.” Mamma lítur niður og bíður eftir fullum skilningi elsku Rays á forlagatrúnni. Þar sem mamma átti 47 frænkur hafði hún óvenjustóran reynslubrunn til að ausa af eftir þörfum. Harmleikir, gleði, þjáningar, vonbrigði — hvaðeina sem hent gat mannlega veru, — hafði þegar komið fyrir einhverja frænku hennar og mamma lét hvorki mig eða pabba gleyma því eina einustu mínútu. Rúlluskautar? Tólf af frænkunum höfðu reynt þá með kvalafullri reynslu. Stefnumót við ókunnugan? ísabella frænka hennar hafði . . .en mamma sagði mér ekkert um það fyrr en ég varð eldri. Öfrávíkjanlega voru það frænkurnar og mamma sem höfðu síðasta orðið. Þegar ég eltist langaði mig svona eins og einu sinni að reyna eitthvað skelfilegra en mamma og frænkurnar hennar 47. En það var sama fyrir hvaða áföllum ég varð, mamma kunni sögur um heitrof, og á móti hverju tári sem ég felldi höfðu frænkurnar og mamma fórnað heilum hafsjó tára. Fram á daginn í dag hefur mamma ekki leyft mér að vorkenna sjálfri mér í svo sem fimm mínútur. Eg hringi í hana og segi. ,,Mér líður ekki vel, þurrkarinn bilaði aftur.” ,,Oh,” segir mamma. ,,Eg komst að því í daga að maðurinn sem ég hef verið gift í 31 ár fer á bak við mig.” Þannig var mál með vexti að kassa- stúlkan á stórmarkaðinum hafði gefið pabba aukainnkaupapoka og veifað honum. Eg eyddi hálftíma t að sannfæra mömmu að þetta hefði alls enga þýðingu haft, og að pabbi væri eins ástfangin af henni og á brúðkaupsdaginn þeirra. Að lokum samsinnir hún mér og segir: „Hvar væri ég stödd án þln?” En þegar ég legg símann á man ég ekki hvert vandamál mitt var. Það rennur upp fyrir mér hve langt mamma í rauninni gengur til að hughreysta okkur cg hversvegna. Stundum tekur það þrjátíu ár að skilja hvert mæðurnar eru að fara. ★
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.