Úrval - 01.01.1979, Side 73
71
ÉG OG HJÖRÐINMIN
Sam sagt, ég hef ekki eins mikið að
gera nú orðið. Mér hafa áskotnast
tómstundir svo um munar. Eg er
farin að huga að einkalífinu, læt mér
detta í hug að eignast hvolpa. Já
meðal annarra orða, þessi bolabítur
reyndist ekki nærri eins mddalegur og
hann sýndist fyrst, hugsunarsamur
meir að segja og bara laglegur. En við
sjáum nú til. Aðalatriðið er að
hjörðin mín er orðin eins og hjörð á
að vera: samhent og vel tamin. Allir
hlýða hverri skipun sem ég gef um
leið og ég gef frá mér bofs og skilja
hverja minnstu bendingu. Eg er
ekkert að miklast þó ég segi að ef
haldin væri húsbændasýning, væm
míniröruggir með gullverðlaunin. ★
í auglýsingaskvni fyrir vasatölvur efndi stórmagasín í Melbourne til
reiknisamkeppni tveggja manna. Annar notaði vasatölvu, sem fyrir-
tækið seldi, en hinn kínverskan reiknikúluramma frá fimmtándu
öld. En þetta fór bara öðm vísi en stórverslunin hafði reiknað með.
Maðurinn með kúlurammann sigraði í níu þrautum af hverjum tíu.
I mörgum löndum hafa blöð sagt í löngu eða stuttu máli frá
„broddgeltinum” tvífættaí Danmörku: Knud Kjerjensen, sem fyrir
bráðum sjö ámm féll illilega í þyrnimnna og varð alsettur þyrnum,
stómm og smáum. Kona hans, Kirsten Marie segir, að síðan hafi
læknar tekið úr honum 32.131 þyrna í 248 spítalaheimsóknum —
fyrir utan þá, sem hún plokkar úr honum jafnt og þétt.
Ungum söngvara fannst ganga seint að verða frægur, svo hann
ákvað að afla sér umtals með því að tryggja rödd sína fyrir 50 millj-
ónir. Hann sneri sér því til ákveðins tryggingafélags og hafði með sér
segulbandsupptöku á nokkmm sinna bestu laga, þar sem hann bæði
söng og jóðlaði.
Tryggingasalinn hlustaði þolinmóður á bandið til enda. Svo leit
hann alvarlegur í bragði á söngvarann og sagði: ,,Þú hefðir átt að
koma til okkar áður en þú misstir röddina.
Eg á vin, sem fer aldrei í megmnarkúr en er samt alltaf jafn þung-
ur. Hann borðar sex máltíðir á dag. Dæmigerð máltíð hjá honum er
þrjú franskbrauð með kjúklingasalati, þrjú buff, tvö kíló af kartöfl-
um, gjarnan frönskum, apríkósubúðingur með þeyttum rjóma og
nokkrar kökur með kaffinu. Samt er þyngdin alltaf sú sama á mínum
manni— 225 kíló. J.A.