Úrval - 01.01.1979, Page 100
Jack Cassingham, tannlækni, mjög á
óvart.
Rannsókn sína gerðu þeir á þann
hátt, að þeir settu þrisvar sinnum tólf
tennur í jafnmarga drykki, sem allir
áttu það sameiginlegt að innihalda
sýru. Tólf tennur voru settar í cola,
tólf 1 svokallaða sérfæðis (diet) cola,
og tólf í appelsínusafa. Slðan voru
tvær tennur teknar úr hverri drykkjar-
tegund í senn, og rannsakaðar í
rafeindasmásjá.
,,Við bjuggumst við að tennurnar
úr cola-drykkjunum yrðu verst úti,”
sagði Rodriguez. En það fór á aðra
lund. Þeir Cassingham komust að
því, að sítrónusýran í appelsínu-
safanum gerði tönnunum meira
ógagn heldur en fosfórsýran í cola-
drykkjunum. Appelsínusafinn eyddi
glerungnum fljótar.
Stanley Heifetz, rannsóknarlæknir
við bandarísku tannlækna-
rannsóknarstofnunina, bætti þessu
við: ,,Það er ekki bara appelsínur,
sem geta farið illa með tennurnar.
Það gera hvers konar sítrusávextir. Ef
maður sýgur cða drekkur safa úr
sítrónum, lime eða einhverjum
öðrum sitrusávexti jafnaðarlega um
langan tíma, er enginn vafí að það fer
með tennurnar í okkur. Á hinn
bóginn er ekki nema gott um það að
segja að njóta þessara ávaxta endrum
og eins.
Það er svo að sjá, sem sítrónusýra sé
sérstaklega kalkeyðandi, og
tennurnar eru fyrst og femst úr
kalki.” Úr National Enquirer
ALLIR GETA FENGIÐ
TENNISOLNBOGA
Þótt heiti sjúkdómsins kenni hann
við ákveðna íþróttagrein, tennis, er
þetta líka atvinnusjúkdómur múrara,
trésmiða, garðyrkjumanna,
tannlækna- og jafvel stjórnmála-
manna, sem ganga of rösklega fram í
því að hrista hendur tilvonandi
kjósenda — það geta sem sagt allir
fengið tennisolnboga.
Tennisolnbogi lýsir sér sem
sársaukafull bólga í vöðvunum, sem
rétt olnbogann, og þessi bólga getur
jafnvel farið út í beinhimnuna við
vöðvafestingarnar. Þetta lagast í
fyllingu tímans, jafnvel þótt ekkert sé
að gert, og jafnvel þótt maður haldi
áfram þeirri iðju, sem sjúkdómnum
olli í fyrstu, að því er segir í
tímaritinu The Medical Letter.
Úr National Enquirer
UPPHITAÐAR HENDUR
HREKJA HÖFUÐVERKINN
Það skyldi þó ekki hafa verið
eitthvað til í blóðtökunni, sem var
allra meina bót hér áður fyrr? Lítið
bara áþetta:
Læknar við Menninger stofnunina í
Topeka í Kansas hafa komist að þeirri
niðurstöðu, að með því að slappa
algerlega af og láta hendur sínar
hlýna, geta menn losnað við
mígrenuhöfuðverki. Þeir viljaþó ekki
að maður noti hitapoka til þess,
heldur á maður einfaldlega að