Úrval - 01.01.1979, Síða 128
126
ÚRVAL
Leonards hefur hann öðlast trú á
lífínu. Hann er eins og þau
sannfærður um, að það hafi ekki
verið tilviljun ein, sem leiddi leiðir
þeirra saman. Hann trúir því statt og
stöðugt, að það hafi bætt honum upp
útlimaskortinn að hafa eignast svona
fágæta kjörforeldra.
,,Ég kýs að lýsa lífí mínu sem
endalausum vegi, stundum renni-
sléttum, stundum holóttum,” segir
hann. ,,Einu sinni kom ég að holu-
kafla hryggðarinnar, þar sem mér
fannst lífíð ekki þess virði að lifa því.
En ég hélt áfram eins og venjulega.
Svo eignaðist ég allt r einu ástríka
foreldra. Og nú er ég kominn langt,
langt á leið — á leið til frelsisins. ’' ★
★
Eg óttast, að við séum allt of föst við efnislega hluti til þess að
muna, að raunverulegur styrkur okkar liggur í andlegum
verðmætum. Ég efast um, að nokkurt vandamál þessa stríðandi
heims yrði ekki auðleyst, ef við nálguðumst það í anda fjallræðunnar.
Harry S. Truman
Ungur faðir kom heim eftir erfíðan dag í vinnunni og gat ekki
tekið óþekktinni r tveimur ungum dætrum sínum með stillingu. Þess
í stað hélt hann yfir þeim skammarræðu og sendi þær í rúmið fyrir
kvöldmat.
Næsta morgun fann hann bréfspjald undir svefnherbergis-
hurðinni. Á því stóð, með klunnalegum prentstöfum:
„Vertu góður við börnin þín þá verða þau góð við þig.
Guð.” Roundup
Það var nærri komið miðnætti, þegar Mikki kallaði í mömmu sína
og bað um vatnsglas. , ,Þú ert orðinn of stór til að kalla á mig og biðja
um vatn,” svaraði mamma hans. Mikki velti þessu fyrir sér
stundarkorn og kallaði svo: , ,Gefðu mér þá kaffibolla. ’ ’
Catholic Digest
Konan kom úr innkaupaferð hlaðin pinklum. „Drottinn minn,”
hróþaði eiginmaðurinn hrelldur. ,,Þegar ég sé allt þetta, kemst ég
ekki hjá því að leiða hugann að því, hvað orðið hafí um gulleggið
okkar.
,,Það get ég sagt þér,” hreytti eiginkonan út úr sér. ,,Hænan varð
þreytt á að liggja á því.”
Cheeriology