Úrval - 01.03.1981, Blaðsíða 51
ÞÚ ÁTT AÐ BERJAST FYRIR LÍFINU
49
en það vœri ráðlegt að halda lyfjagjöf-
inni áfrarn til að auka öryggi
mitt. I þeirri viku tðk ég him vegarþá
erfiðu ákvörðun að hœtta við lyfja-
meðferðina.
SÍÐAN ERU FJÖGUR ár. Nú hafa
húð og hár Neils komist í
eðlilegt horf en sumar æðarnar eru
enn öróttar og þröngar. Er
krabbameinið horfið? Það er ekki
nokkur leið að vita með vissu hvort
hann er læknaður eða í löngu milli-
bilsástandi. En honum fmnst hann
heilbrigðari en fyrir sjúkdóminn og
almennt er líf hans rólegra og ríkara.
Ef hann langar að sitja um stund
uppi á fjalli og horfa á svif fuglanna,
gerir hann það. Hann hefur samband
við fólk sem hann fellir sig við en
forðast þá sem þreyta hann. Á
margan hátt má segja að hann hafi
lært að elska lífið. Það má segja með
sanni að Neil Fiore sé dæmi um að sá
sem „axlar ábyrgðina” getur barist
þótt líkurnar séu honum ekki í vil.
Við endalok meðferðarinnar bað
lyflœknirinn minn mig um að segja
frá á myndbandi hvernig ég hefði
barist við sjúkdóminn og hliðarverk-
anir hans, í því skyni að leyfa öðrum
krabbameinssjúklingum að heyra frá-
sögnina. Eg reyndi að gera grein fyrir
vissum atriðum:
Þú hefur rétt til að sþyrja lœkninn
þinn. Ef þú hefur áhyggjur eða ert
hikandi varðandi meðferð, biddu þá
um rökstuðning fyrir meðferðinni.
Sþurðu um aðrar aðferðir.
Ekki eyða kröftum í áhyggjur. Ef
þú hefur áhyggjur af viðvarandi
kvölum hafðu þá samband við
lœkninn. Reyndu að yfirvinna
áhyggjur af því að þú sért að trufla
hann eða sért álitinn þlága.
Ef lœknirinn þinn sýnir tilfinning-
um þínum ekki skilning, fáðu þér þá
annan.
Ekki leggja lífsábyrgð þína í
hendur læknisins eða neyða hann til
að leika guð. Virtu skoðanir hans en
virtu líka sjálfan þig og líkama þinn.
Stundum óskarðu að læknirinn taki
ákvarðanir fyrir þig, það er þitt að
ráða því.
Ekki missa vonina þótt meðaltal úr
skýrslum sé þér öhagstœtt. Það er
ekkert vit í því að gefast uþþ vegna
þess að ,,bara tíu þrósent af fólki
með samskonar sjúkdóm hafa lifað
af”. Mundu: Þeir sem lifðu af, lifðu
það af 100%. ★
Ég er Indverji og nýkominn til Ameríku. Á ferð minni um vestur-
hlutann kom ég auga á amerískan indíána í fullum skrúða. Ég
stöðvaði bíiinn til að taka af honum myndir. Þegar ég hafði lokið því
spurði hann: „Hvaðan ertu?”
„Indlandi.”
,,Aha!” sagði hann og brosti vinsamlega. „Kólumbus var að leita
að þér en fann mig! ” —NK