Úrval - 01.03.1981, Blaðsíða 54

Úrval - 01.03.1981, Blaðsíða 54
Í2 ÚRVAL fyrsta sinn sem Last fór út úr húsi fór Todd með hann í smágöngutúr. , ,Ég ætla að sýna þér gröfina hans Washingtons,” svo leiddi hann hann að þúfu undir mangótrjánum. „Hann var mér góður. Á hverjum degi las hann fyrir mig í tvo tíma eftir hádegið. Ég er að hugsa um að setja kross til minningar um hvenær hann dó og líka til minningar um komu þína. Það ergóð hugmynd.” Þegar Last hafði verið hitalaus í sex eða sjö daga samfleytt sagði Todd: ,,Nú held ég að þú sért nógu hress til að líta á bækurnar.” I öðrum enda kofans var nokkurs- konar háaloft, pallur uppi undir þak- skeggi. Todd reisti stiga upp við pallinn og klifraði upp og Last fylgdi honum eftir þótt hann væri enn máttfarinn eftir veikindin. Todd settist á pallinn en Last stóð efst í stig- anum og leit í kringum sig. Þarna voru fjölmargir pakkar vafðir með tuskum, pálmalaufi og skinnum. ,,Það hefur verið erfítt að verja þær fyrir ormum og maurum. Tvær eru alveg ónýtar.” Todd leysti utan af þeim pakka sem næstur honum var og rétti Last bók innbundna í kálfsskinn. Þetta var gömul amerísk útgáfa af Bleak House. „Ertu hrifinn af Dickens?” spurði Last. „Meir en hrifínn. Þú skilur. Það eru einu bækurnar sem ég hef heyrt. Pabbi var vanur að lesa þær og síðan Washington . . . og nú þú. Ég hef heyrt þær nokkrum sinnum en ég þreytist aldrei á þeim, það er alltaf eitthvað nýtt í þeim, svo margskonar persónuleikar, svo margvíslegt umhverfí, svo mörg orð . . . Ég á allar bækur Dickens nema þær sem maur- arnir eyðilögðu. Það tekur langan tíma að lesa þær allar — yfir tvö ár. ’ ’ „Jæja,” sagði Last léttilega. „Þær duga gott betur en veru mína hér. ” „Ég vona ekki. Það er svo gaman að byrja upp á nýtt. I hvert skipti finn ég eitthvað nýtt til að dást að.” Síðar um daginn las Last fyrsta lesturinn. Honum hafði alltaf þótt gaman að lesa upphátt. Gamli maðurinn sat klofvega á hengirúminu gegnt Last og líkti eftir hverju orði með vörunum, án þess að .nokkurt hljóð heyrðist. Oft þegar ný persóna kom til sögunnar sagði hann: „Endurtaktu nafnið, ég er búinn að gleyma honum,” eða „já já, ég man vel eftir henni. Hún deyr, vesalings konan.” Oft truflaði hann lesturinn til að spyrja um persónurnar. Að kvöldi þessa fyrsta dags sagði gamli maðurinn: „Þú last stórkost- lega. Það var alveg eins og hann pabbi minn væri kominn aftur.” I hvert skipti sem gestur hans hafði lokið lestrinum þakkaði hann kurt- eislega fyrir sig. „Ég hafði mjög gaman af þessu. Þetta var ákaflega sorglegur kafli, en ef ég man rétt þá á þetta allt eftir að batna. Dag nokkurn þegar Last var að blaða í þeim hluta Bleak House sem hann átti eftir að lesa sagði hann: „Við
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.