Úrval - 01.03.1981, Page 121
UNGFRÚ FRÁSER OG LÖGREGLAN
119
,,Hvað hefur hann gert, ungfrú
Fraser?”
,,Gert? Hann hefur aftur stráð
þvottaefni um allan stigann hjá mér.
Hann gerir alltaf eitthvað þessu líkt.
Það verður að koma honum til að
hætta þessu.”
,,Hvernig kemst hann inn?”
,,Ég bara veit það ekki.” Það brá
fyrir angistarsvip á andlitinu. ,,En
hann kemst samt inn. Ég get ekki
komið í veg fyrir það.”
,,Hvar býr hann?”
,,í næsta húsi, númer 41,” sagði
hún. „Þetta er hræðilegur
nágranni!”
,,Það er ekki í okkar verkahring að
blanda okkur inn í nágrannakryt,”
reyndi ég að útskýra fyrir henni. ,,Ef
þú fengir þér lögfræðing til að skrifa
honum og biðja hann að hætta þessu
er ég viss um að það hefði áhrif.
,,Ungi maður, hann myndi ekki
hætta. Ég er búin að reyna allt” —
hún hækkaði röddina — ,,ég er að