Upp í vindinn - 01.05.1996, Side 48
HVALFJARÐARGONG
Þegar litið er til baka örfáa áratugi vekja athygli þær breytingar
sem orðið hafa á vegakerfi landsins.
I æsku þeirra, sem nú eru komnir á legg, var ökuferð úti á landi hálf-
gert happdrætti hvenær ársins sem var. I vætutíð varð vegurinn blautur og
holóttur. Oft myndaðist það sem kallað var „þvottabretti”. I þurrki óku
menn áfram í rykmekki og væri bíllinn ekki meira en í meðallagi þéttur,
urðu farþegarnir býsna rykfallnir jafnvel í stuttri ökuferð.
Fyrstu kaflar hringvegarins með bundnu slitlagi voru gerðir á árunum
milli 1970 og 1975 á suðvesturhorni landsins. Þáttur í þróun vegagerð-
ar hefur verið fólginn í því að taka af beygjur og gera leiðirnar þannig
greiðfærari. Sem dæmi má nefna Blönduhlíð í Skagafirði og Meðal-
landið í Vestur-Skaftafellssýslu, en á báðum stöðum hefur þjóðvegurinn
verið fluttur niður á slétta áraura og jafnframt styst verulega.
Nú eru vegagerðarmenn heldur betur farnir að færa sig upp á skaftið.
Þeir láta sér ekki lengur nægja að gera vegi bara upp á gamla mátann, en
eru farnir að brúa firðina og fara gegnum fjöllin. Og ekki nóg með það.
Síðustu hugmyndir eru að gera göng undir Hvalfjörð. Ekki er nú öll
vitleysan eins!
Ekki kemur á óvart að áætlanir um Hvalfjarðargöng veki undrun og
spurningar um það hvort nokkurt vit geti verið í slíkri framkvæmd.
Fyrir tveimur til þremur áratugum hefðu áætlanir um Hvalfjarðar-
göng ekki verið raunhæfar. Þá er átt við það að göng gerð á þeim tíma
hefðu ekki skilað hagrænum ávinningi. Þvert á móti hefði þurft að
borga drjúgt með þeim.
Af hverju ætla menn þá að fara í þetta í dag, hvað hefur breyst?
Það hafa svo sannarlega orðið miklar breytingar á þessum tíma sem
leiða til þess að göng geta í dag skilað hagnaði. Tvennt er þyngst á
metum:
• A tveimur áratugum þrefaldast umferðin fyrir fjörðinn, úr 500 í
1500 bíla á dag.
• Jafnframt fleygir fram tækni við borun og sprengingu jarðganga og
reynslu er aflað af slíkum verkum.
Að því er síðara atriðið varðar, er þess skemmst að minnast, að á
síðasta ári var lokið við að sprengja göng undir Breiðadalsheiði á
Vestfjörðum, verk ekki ósvipað Hvalfjarðargöngum að stærð og gerð.
Hér á eftir fer yfirlit um helstu áfanga í sögu
vegtengingar um Hvalfjörð.
1. 1934
2. 1990
3. 1945
4. 1946
5. 1963-6
6. 1967-72
7. 1977
8. 1983
9. 1987-90
10. 1990
11. 1991
12. 1991-3
13. 1994
14. 1996
Vegtengingu um Hvalfjörð lokið.
Lagningu slitlags lokið.
Bæjarstjórn Akraness lætur athuga möguleika á bílferju.
2 innrásarprammar keyptir.
Vegur að Katanesi + ferjulægi.
Rannsóknir á ferjuhaldi.
Nefnd um alhliða rannsókn vegna vegar um Hvalfjörð.
Ferjubrýr Akraborgar teknar í notkun.
Athugun á bílferju yfir Hvalfjörð.
Vegagerð ríkisins: Athuganir á jarðgöngum,
fyrsta skýrsla 1987.
Starfshópur hagsmunaaðila:
Félag um jarðgangagerð.
Spölur hf. stofnaður.
SPÖLUR: Rannsóknir.
SPÖLUR: Útboð jarðganga.
Jarðgangagerð hefst.
Jónas lauk prófi í byggingarverkfræði í
Tækniháskólanum í Kaupmannahöfn
1960. Hann starfaði við hönnun
burðarvirkja hjá Rambell og Hannes-
mann A/S '60- 63, Schwartzlose &
Kofoed A/S '63-'65 og Almenna
byggingafélaginu '65-'66. Verkfr. við
byggingu Búrfellsvirkjunar hjá Fosskraft
'66-70. Hefur starfað hjá ístaki hf. frá
1970, nú sem aðstoðarframkv.stj!
Lýsing á göngunum.
Göngin verða alls 5.770 metrar að lengd. Þar af:
Vegskálar við enda 105 m
Sprengd göng á landi 1.915 m
Sprengd göng undir sjó 3.750 m
Tvær akreinar að sunnanverðu, 3.600 m að lengd.
Þrjár akreinar að norðanverðu, 2.200 m að Iengd.
Halli á vegi að sunnanverðu mest 7%
Halli á vegi að norðanverðu mest 8,1%.
Hvað kosta göngin?
Áætlað er að Hvalfjarðargöng kosti 4.630 milljónir króna þegar þau
verða tilbúin fyrri hluta árs 1999.
Nomura Bank International og aðrir ráðgjafar SPALAR, áætla að
stofnkostnaður ganganna skiptist sem hér segir:
Undirbúningskostnaður Eftirlit og kostnaður SPALAR 480 mkr.
á byggingartíma ganganna 150 mkr.
Framkvæmdakostnaður 3.300 mkr.
Fjármagnskostnaður á byggingartíma 700 mkr.
Stofnkostnaður alls 4.630 mkr.
Hvaðan koma peningarnir?
Hlutafé 86 mkr.
Lán úr ríkissjóði FramkvœmdalÁn (án ríkisábyrgSar): Enskilda í Svíþjóð 2.474 mkr. Innlendir bankar 825 mkr. 120 mkr.
Baring Brothers Ltd. 825 mkr. 4.124 mkr.
Ríkissjóður Islands (hámark) 300 mkr.
Fjármögnun, stofnkostnaður alls 4.630 mkr.
Verktakar.
Verkakar við framkvæmdina eru: Istak h£, Skanska International AB
og E. Pihl & Son AS., er mynda samstarfshóp (joint venture) sem
starfar undir heitinu Fossvirki sf. Istak stjórnar framkvæmdum
(sponsor) en Skanska er tæknilegur forsvarsaðili. Sömu félög, ásamt
48
...upp í vindinn