Sveitarstjórnarmál - 2021, Page 7
FRÆÐSLUMÁL
7
Þannig verður
Sveitarfélagaskólinn
aðgengilegur í gegnum
vefsíðu sambandsins og
notendavæn hönnun gerir
það að verkum að hægt er
að nýta sér bæði tölvur og
síma við námið.
sveitarstjórnarfólk nálgast námsefnið
hvenær og hvar sem er, svo lengi sem
nettenging er til staðar.
Samstarfið við Opna háskólinn í HR
felst því bæði í að veita sambandinu
kennslufræðilega aðstoð við að tryggja
að námsefnið sé skilvirkt og gagnlegt
fyrir sveitarstjórnarfólk með fjölbreyttan
bakgrunn en einnig stafræna þjónustu til
að tryggja að efnið sé aðgengilegt á sem
þægilegast hátt.
Nafnið Sveitarfélagaskólinn vísar til
þess að vonir standa til að í framhaldinu
verði hægt að gera aðgengileg frekari
námskeið tengd starfsemi sveitarfélaga
bæði fyrir kjörna fulltrúa og starfsfólk
sveitarfélaga. Þannig geti orðið til
þekkingarmiðstöð fyrir sveitarfélög þar
sem aðgengi verður að gagnvirkum
stafrænum námskeiðum.
Sveitarfélagaskólinn fer í loftið eftir
sveitarstjórnarkosningar vorið 2022.
Vinna er hafin við gerð námsefnis þar
sem byggt er á gömlum grunni en þó
með breyttum áherslum á efnistökum,
miðlun og framsetningu. Einnig er tekið
mið af ábendingum frá þátttakendum
eftir námskeiðið sem haldið var að hausti
2018. Við hvetjum sveitarstjórnarfólk til
að senda okkur ábendingar um efnistök.
Hvað kom á óvart þegar þú hófst störf
í sveitarstjórn? Hvaða verkfæri eða
upplýsingar hefði verið gott að hafa við
hendina strax fyrstu vikurnar í starfi?
Vonir okkar standa til þess að með
Sveitarfélagaskólanum verði námsefnið
skemmtilegra, skipulagðara og
aðgengilegra fyrir þátttakendur, en einnig
að námskeiðin efli sveitarstjórnarfólk til
góðra starfa sveitarfélagi og samfélagi til
heilla.