Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 2021, Blaðsíða 15

Sveitarstjórnarmál - 2021, Blaðsíða 15
15 25 ÁR FRÁ YFIRFÆRSLU GRUNNSKÓLANS félagslega bakgrunni eða búsetu. Í dreifðari byggðum er sérfræðiþjónusta oft stopul. Stuðningur við kennara og stjórnendur getur verið af skornum skammti í dreifbýli og þar getur oft verið erfitt að ráða fólk með rétta menntun eða nægilega reynslu í sérfræðiþjónustu. Þessa þjónustu þarf að stórefla með því að nýta sér tæknina og auka þannig aðgengi nemenda að sérfræðiþjónustu óháð staðsetningu. Kennsla án staðsetningar Í heimsfaraldrinum tók skólasamfélagið stökk í nýtingu tækni, sem er vel. Nauðsynlegt er að nýta þá þekkingu til að auka tækifæri nemenda til náms með jafnréttið að leiðarljósi. Auka þarf miðlæga kennslu þannig að nemandi á Höfn geti kosið að læra spænsku eða önnur tungumál hjá kennara á Ísafirði eða nemendur hvaðan af landinu geti lært forritun hjá kennara sem starfar án staðsetningar. Nýbúar hvar sem þeir eru búsettir ættu að fá markvissa íslenskukennslu á skjánum. Eflum fjarnám og aukum þannig námsframboð nemenda óháð búsetu þannig að þeir geti fundið og stutt við sína styrkleika. Áskoranir kalla á breytingar Áskoranir í skólasamfélaginu eru margar. Við stöndum frammi fyrir kennaraskorti. Læsi nemenda þarf að bæta. Pisa niðurstöður standa ekki undir væntingum. Efla þarf nýbúakennslu. Brottfall drengja úr námi er umtalsvert og 75% þeirra sem útskrifast úr háskólanámi eru konur. Það er ólíklegt að þetta og fleira breytist ef við höldum áfram að gera hlutina með sama hætti og síðustu áratugi. Breytinga er greinilega þörf. Það er mín trú að Ísland sé í kjörstærð til breytinga í menntakerfinu. Margir kennarar eru fullir af eldmóði og tilbúnir í breytingar, margir eru þegar farnir af stað en þurfa meiri stuðning. Í kennslustofum landsins verða til magnaðir hlutir daglega og margir litlir sigrar. Raunverulega jöfn tækifæri Góðir skólar kosta vissulega en menntun má og á að kosta, því til langtíma þá kostar það samfélagið margfalt meira að útskrifa nemendur úr skólakerfinu sem eru illa undirbúnir undir sína framtíð. Þess vegna er mikilvægt að tryggja jafnrétti til náms og aðgengi nemenda að sérfræðiþjónustu á námsárum sínum. Með raunverulegum jöfnuði ættu leikskólar að vera gjaldfrjálsir en Ísland er eitt af fáum Evrópulöndum sem reiknar með kostnaðarhlutdeild foreldra alla leikskólagönguna. Skólamáltíðir ættu sömuleiðis að vera fríar en sum sveitarfélög eru einmitt að stíga það skref, sem er til fyrirmyndar. Allir nemendur ættu að hafa tækifæri til að iðka íþróttir, stunda listnám, verklegar greinar og tónlistarnám. Það eiga öll börn og ungmenni rétt á því að byrja á sama reit óháð sínu baklandi eða búsetu. Þannig verða tækifæri nemenda þessa lands raunverulega jöfn. Gerum góðar heimtur betri Sköpum hugarró Við verndum dýrmæt viðskiptasambönd og stuðlum að hugarró með því að koma málunum í góðan farveg. Sími 520 40 40inkasso.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.