Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 2021, Page 23

Sveitarstjórnarmál - 2021, Page 23
23 Stjórnarmenn í Grunnstoð, sem eru svæðasamtök foreldrafélaga í Garðabæ, hittust á fundi með Gunnari Einarssyni bæjarstjóra á Álftanesi í júní 2015. Fjárfestum í samtali við foreldra Sigrún Edda Eðvaldsdóttir Formaður Heimilis og skóla Á dögunum var ég minnt á það að við foreldrar bærum ábyrgð á menntun barnanna okkar. Yfir þessum orðum hef ég verið pínu hugsi og þá ekki á þann hátt að efast um gildi né mikilvægi þeirra heldur meira hvað felst í þessari ábyrgð. Málefni sem við foreldrar eða skólasamfélagið höfum því miður ekki mikið staldrað við. Þarf að skilgreina betur hlutverk og skyldur heimila og skóla? Á undanförnum árum og áratugum hafa orðið alveg gríðarlega miklar samfélagslegar breytingar sem hafa eðlilega haft mikil áhrif á okkar daglega líf. Það er því afar brýnt að við skilgreinum og ræðum væntingar og hlutverk allra þeirra sem mynda skólasamfélagið með hagsmuni barnanna okkar að leiðarljósi og út frá þeim samfélagslegu áskorunum sem við stöndum frammi fyrir á hverjum tíma. Við höfum kannski gefið okkur að við þekkjum flest þetta hlutverk og þær væntingar sem uppi eru og hvíla m.a. á okkur skólaforeldrum þegar barnið okkar byrjar í skóla. Stóra spurningin er hins vegar, getum við leyft okkur að gefa okkur það? Það er að viðhorf og sýn okkar foreldra á hlutverkið sé það sama og skólans þegar svo mikið vatn hefur runnið til sjávar frá því við sjálf sátum á þessum skólabekk, því ekki hefur tíminn staðið í stað. Bjóðum foreldrum til samtals Skólinn er og á að vera lærdómssamfélag. Hann þarf að endurspegla þá hugmyndafræði þar sem allir þeir sem að borðinu koma, fái jöfn tækifæri til að taka þátt í samtalinu um að gera gott skólasamfélag enn betra. Við foreldrar erum stór og mikilvægur hluti hvers skólasamfélags. Það er því afar mikilvægt að hver og einn skóli horfi til síns nærsamfélags og þess mannauðs sem þar býr og sé tilbúinn til að fjárfesta í samtali um skóla- og menntamál. Samkvæmt lögum er foreldrum gert að gæta hagsmuna barna sinna á skólaskyldualdri en hvar er vettvangurinn? Það er því vel við hæfi að hvetja sveitarfélög landsins til að skapa þennan vettvang, sé hann ekki þegar til staðar. Með því að efna til samtals við hagaðila og horfa til þess sem vel er gert og þess sem betur má fara, aukum við líkurnar á því að við sem myndum skólasamfélagið náum að stilla saman

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.