Sveitarstjórnarmál - 2021, Page 30
staðið undir raunverulegum kostnaði
við framhaldsskólabygginguna og hafa
sveitarfélögin lagt á þriðja hundrað
milljónir inn í félagið frá 2004.
SVEITARSTJÓRNARMÁL
30
Nú renna tekjur af ferða-
mönnum fyrst og fremst
í ríkissjóð en sveitarfélög
skortir sárlega tekjustofn
til að byggja upp innviði.
Því sveitarfélögin
standa klárlega í mikilli
uppbyggingu innviða
fyrir atvinnugreinina
ferðaþjónustu, ekkert síður
en ríkið.
Kirkjufellið hefur mikið aðdráttarafl og er að flestra mati fallegasta fjall landsins. Ljósm.: Tómas Freyr Kristjánsson.
„Tilkoma framhaldsskólans hafði
strax gríðarleg áhrif á samfélögin.
Fjölskyldurnar gátu haft unglingana
heima til tvítugs og þeim fjölgaði verulega
sem fóru í framhaldsskólanám. Færri
flosnuðu upp úr skóla og fjölmargir sem
áður höfðu ekki klárað nám eða haft
tækifæri til að fara í nám gerðu það nú,
fólk á ýmsum aldri.“
Á blússandi siglingu 1995-2006
Sem fyrr segir einkenndist fyrra tímabil
Bjargar í stól bæjarstjóra af mikilli
uppbyggingu og grósku.
„Það er óhætt að segja að allt hafi
verið hér á blússandi siglingu á árunum
1995-2006. Samfélagið hefur oft tekið
svona vaxtarkippi sem haldast í hendur
við styrkingu innviða eins og hafna og
umbóta í sjávarútvegi. Það gerðist á
áttunda áratugnum og aftur á þessum
árum. Gríðarleg uppbygging varð í
sjávarútvegi og aðstöðu honum tengdum.
Lenging á Norðurgarði hafnarinnar
um 100 metra upp úr 2000 skipti miklu
máli. Aðstaða fyrir smábáta og bygging
Miðgarðs, í stað litlu bryggju, sömuleiðis.
Störfum og fólki fjölgaði og samhliða
var byggt íbúðarhúsnæði til að taka við
þessari miklu fjölgun.
Við vorum mjög ungt samfélag. Hér
var eitt hæsta hlutfall íbúa 16 ára og
yngri á þessum tíma. Verkefnin voru
í samræmi við það. Árið 1996 tóku
sveitarfélögin við rekstri grunnskólans
af ríkinu og átak var gert til að einsetja
hann. Við nánast tvöfölduðum húsnæði
grunnskólans 1997-2000. Leikskólinn
var líka að springa svo við stækkuðum
hann. Tónlistarskólinn fékk einnig nýtt
húsnæði og við réðum fleira fólk til vinnu
í skólunum.
Talsvert var byggt af íbúðarhúsnæði og
því fylgdi skipulagsvinna og gatnagerð.
Bærinn byggði einnig 15 íbúðir ætlaðar
eldri íbúum, 1996 og 2004, og þannig
varð mikil rótering á húsnæði – yngra
fólkið keypti stóru húsin. Þetta var mikið