Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 2021, Side 31

Sveitarstjórnarmál - 2021, Side 31
FORSÍÐUVIÐTAL 31 Ungmenni mynda hjörtu við dvalar- og hjúkrunarheimilið Fellaskjól við upphaf Covid-19 bylgjunnar 2020. Ljósm.: Tómas Freyr Kristjánsson. gróskuskeið og mjög ánægjulegt að fá að stýra þessum verkefnum og taka þátt í uppbyggingunni. Þegar ég varð aftur bæjarstjóri 2018 blasti við talsvert önnur staða. Í millitíðinni hafði orðið efnahagshrun og skuldastaða bæjarins var frekar erfið en fór þó batnandi. Tekjur bæjarins eru lakari en áður, útsvarið virðist vera að gefa eftir, en nokkur fækkun íbúa hefur einnig sitt að segja. Við stefndum hraðbyri að þúsund íbúum þegar ég hætti 2006 en nú erum við á róli undir 900 íbúum. Fækkunin er meiri í yngri aldurshópunum. Fólk lifir lengur og eignast færri börn. Þetta er bara þróun sem víða blasir við. Grunnskólabörn hér voru um 220 þegar mest var en eru komin niður í rúmlega 100 og er heldur á uppleið. Þá hafa orðið ýmsar breytingar í atvinnuháttum. Útgerðum hefur fækkað og samþjöppun orðið í sjávarútvegi, skipin eru færri og stærri en áður og vinnslan mun tæknivæddari. Grundarfjarðarbær hefur yfir helming útsvars frá veiðum og vinnslu. Aðrar atvinnugreinar eru mun minni.“ Þurfum meiri tekjur af ferðamönnum Fækkun íbúa og breytingar í atvinnuháttum hafa haft mikil áhrif á tekjur Grundarfjarðarbæjar. Björg segir að Jöfnunarsjóðstekjur bæjarins hafi verið í nánast frjálsu falli samhliða íbúafækkun og baráttan um tekjurnar er hörð. Mörg sveitarfélög eru í sambærilegri stöðu, að sögn Bjargar. Ferðaþjónusta í Grundarfirði tók mikinn kipp á árunum fyrir Covid-19 en varð fyrir miklu áfalli þar eins og annars staðar þegar faraldurinn skall á. Helsta einkenni bæjarins, Kirkjufellið, varð skyndilega heimsfrægt og ferðamenn dreif að til að mynda það og skoða jafnframt hinn fagra Kirkjufellsfoss. Björg segir að fjölgun ferðamanna hafi vissulega verið mikil lyftistöng en jafnframt áskorun fyrir sveitarfélagið og landeigendur. „Þar sem eru ferðamenn í stríðum straumum, þar þarf að byggja upp áningarstaði og innviði á borð við bílastæði, göngustíga, útsýnispalla og fleira. Auk þess þarf að bæta upplýsingagjöf og aðra þjónustu. Nú renna tekjur af ferðamönnum fyrst og fremst í ríkissjóð en sveitarfélög skortir sárlega tekjustofn til að byggja upp innviði. Því sveitarfélögin standa klárlega í mikilli uppbyggingu innviða fyrir atvinnugreinina ferðaþjónustu, ekkert síður en ríkið. Ef við hugsum um uppbyggingu hafnaraðstöðu, þá er þar fyrir hendi klár tekjustofn; hafnargjöld. Það eru tekjur sem renna í hafnarsjóði og standa undir hluta sveitarfélaganna í uppbyggingu hafna, á móti hluta ríkisins. Þær tekjur hafa gert kleift að bæta hafnaraðstöðu með afar jákvæðum áhrifum á atvinnulíf, útgerð, fiskvinnslu og þjónustu við þessar greinar. Sveitarstjórnarmönnum líður svolítið eins og betlurum gagnvart ríkisvaldinu þegar kemur að úthlutun fjármagns vegna uppbyggingar ferðaþjónustu. Við höfum Framkvæmdasjóð ferðamannastaða sem var ágæt lausn í hraðri þróun á sínum tíma, en hann dugir ekki til. Miklu eðlilegra væri að hluti af tekjum ríkissjóðs af ferðamönnum rynni til sveitarfélaga. Fasteignagjöld af húsnæði í ferðaþjónustunotum eru mjög mismunandi eftir sveitarfélögum og standa alls ekki í samhengi við útgjöld þeirra við uppbygginguna. Útsvar starfsfólks í ferðaþjónustu stendur heldur ekki undir þörfinni fyrir uppbyggingu og á í raun frekar að renna til þjónustunnar við greiðendur þess,“ segir Björg. Breytt íbúasamsetning Hún ólst upp í frekar einsleitu og nánast alíslensku umhverfi. Nú hefur orðið mikil breyting þar á. Þegar hún stóð upp úr stól bæjarstjóra 2006 voru erlendir ríkisborgar um sex prósent íbúa í Grundarfirði. Þegar hún sneri aftur 2018 voru þeir orðnir um 18 prósent íbúanna og eru Pólverjar fjölmennastir í þeim hópi. „Þetta er mikil samfélagsbreyting sem við þurfum að bregðast við. Að búa í

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.