Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 2021, Side 33

Sveitarstjórnarmál - 2021, Side 33
FORSÍÐUVIÐTAL 33 vinna að þessum málum í sínu horni og bæjarstjóri fékk grátandi fólk inn á skrifstofu til sín í örvæntingarfullri leit að aðstoð. Fjölbrautaskólinn er að vísu rekinn af ríkinu, en sveitarfélögin hafa fylkt sér um hann og stutt að svo mörgu leyti og hann er gott dæmi um ávinning góðrar samvinnu. Sérfræðingar sem við þurfum á að halda eru eftirsóttur vinnukraftur í ýmiss konar þjónustu sem við veitum. Ég nefni skipulags- og byggingarmál, menntun, skólaþjónustu og félagsþjónustu. Fólk vill vinna í stærri teymum, eiga starfsfélaga sem sinna sams konar verkefnum og eiga þar stuðning vísan í viðfangsefnum dagsins. Viðfangsefnin okkar verða líka sífellt flóknari – það er þörf fyrir breiðari nálgun, þverfaglega vinnu og aðkomu margra. „Gamli byggingarfulltrúinn, sem sinnti skipulagsmálum, byggingarmálum, veitumálum og fjölbreyttum tæknilegum verkefnum, hann er ekki lengur það sem fólk vill hafa á herðunum. Við eigum að sameina sveitarfélögin og mynda teymi til að sinna stærri svæðum. Stærsti ávinningur sameiningar er þó án efa sá, að það verður auðveldara að vinna með þau tækifæri sem svæðið býr yfir og 4.000 manna samfélag, með hefð fyrir samvinnu, hlýtur að hafa talsvert meiri vigt í margs konar samhengi. En auðvitað þarf að vanda til verka og finna rétta tímapunktinn,“ segir Björg. Skipulagið mikilvægt verkfæri Hún býr að gríðarlegri reynslu í skipulagsmálum eftir að hafa verið bæjarstjóri í 14 ár og unnið þess á milli fyrir ráðgjafarfyrirtækið Alta í 12 ár en fyrirtækið veitir meðal annars sveitarfélögum ráðgjöf um skipulagsmál. Eitt af fyrstu verkum Bjargar eftir að hún sneri aftur í starf bæjarstjóra var að ljúka við gerð aðalskipulags fyrir tímabilið 2019-2039, en Grundarfjarðarbær hafði einmitt notið ráðgjafar Alta við gerð þess. „Aðalskipulagið okkar er mjög stefnumiðað og praktískt enda er í því fólgin meginstefna sveitarfélagsins til 2039. Rétt notað skipulagsferli og vel unnið aðalskipulag getur verið eitt öflugasta verkfæri sveitarfélags. Svæðisskipulag getur sömuleiðis hjálpað til við að ná utan um hagsmuni og tækifæri sem svæði eiga sameiginleg. Svæðisskipulag Snæfellsness frá 2015 gegnir stóru hlutverki og um það hefur ríkt samstaða hjá sveitarfélögunum á Snæfellsnesi. Við höfum jafnframt tekið höndum saman í umhverfismálunum og Snæfellsnes hefur nú fengið umhverfisvottun samfélaga. Við höfum nú fengið hana 13 skipti og erum mjög stolt af starfinu sem að baki býr. Að mínu mati er þetta þó verkefni þar sem alltaf þarf að vera á tánum því breytingarnar eru hraðar. Við stofnuðum einnig Svæðisgarðinn Snæfellsnes 2014 (snaefellsnes. is) en þar er um að ræða fjölþætt samstarf sveitarfélaga, atvinnulífs og félagasamtaka á svæði sem myndar samstæða landslags- og menningarlega heild. Samstarfið byggir á sameiginlegri sýn um sérstöðu svæðisins og samtakamætti við að hagnýta sérstöðuna og vernda. Þetta samstarf hefur skilað margvíslegum árangri.“ „Óviðkomandi aðili“ gagnvart útsvarinu Björg er virk í störfum að sveitarstjórnarmálum á vettvangi sambandsins, ekki síst hvað varðar fjármál sveitarfélaga. Hún er einn af þremur fulltrúum sambandsins í starfshópi samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins sem unnið hefur að tillögum um endurskoðun ákvæða laga um fjármálareglur sveitarfélaga. Auk hennar eiga Birgir Björn Sigurjónsson og Sigurður Ármann Snævarr sæti í hópnum af hálfu sambandsins. Björg og félagar hennar í bæjarstjórn Grundarfjarðar hafa einnig haft frumkvæði að því að berjast fyrir umbótum hvað varðar upplýsingagjöf um útsvar sveitarfélaganna. Hún segir með ólíkindum að sveitarfélög skuli ekki fá haldbetri upplýsingar um þennan mikilvægasta tekjustofn sinn. „Við hér í Grundarfirði höfum orðið vör við óútskýrðar sveiflur í útsvarstekjum. Eins fannst okkur útsvarið hjá okkur vera að lækka umfram það sem okkur líkaði. Við reyndum að fá skýringar á þessu og yfirhöfuð upplýsingar um samsetningu og uppruna útsvars, til dæmis eftir atvinnugreinum og tegundum greiðenda – en án árangurs. Það hefur sérlega mikla þýðingu á óvissutímum að þekkja útsvarið og geta áætlað áhrif af áfalli eða niðursveiflum í einstökum atvinnugreinum, sem getur komið mismunandi út í einstökum sveitarfélögum. Ríkið – Skatturinn – innheimtir útsvar fyrir sveitarfélögin og þau greiða vel á annan milljarð fyrir það á ári. Það eru til upplýsingar í kerfinu, en það þarf samstíga vinnu til að breyta þessu. Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar vinnur nú að metnaðarfullu verkefni um „Gönguvænan Grundarfjörð“, á grunni markmiða nýs aðalskipulags. Horft er á þarfir samfélagsins til lengri framtíðar við endurbætur á gangstéttum og stígum, sem eru breikkaðir verulega, tengingar og aðgengi bætt. Gróðri er bætt við með “blágrænum svæðum” sem taka vel við regnvatni og létta álagi af holræsakerfi bæjarins.

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.