Sveitarstjórnarmál - 2021, Side 35
35
Ég get vel tekið undir það
sem góður maður sagði
að það að vera bæjarstjóri
minni að mörgu leyti meira
á lífsstíl en starf.
Þetta er baktería, maður er alltaf á
vaktinni, alltaf að hugsa um hagsmuni
sveitarfélagsins, horfa í kringum sig,
læra og taka með sér hugmyndir.
Undirmeðvitundin virkar þannig, maður
verður að lifa við að þetta býr í manni.
Það er ekki svo auðvelt að slökkva á
bæjarstjóranum, segir Björg Ágústsdóttir,
bæjarstjóri í Grundarfirði.
„Ég er frekar léleg í því að kúpla mig
út úr vinnunni og ekki til þess fallin að
ráðleggja öðrum um það. En eitt af því
sem ég hef náð að stjórna er að hafa
ekki öllum stundum áhyggjur af öllu, þótt
margt bíði úrlausnar. Maður verður líka
að finna sér eitthvað sem maður getur
gleymt sér í, svona núvitundaræfingar,“
bætir hún við.
Vinnudagar bæjarstjórans í Grundarfirði
geta verið langir og Björg viðurkennir að
það hafi oft komið niður á fjölskyldulífinu.
„Ég viðurkenni bara að ég er einfaldlega
ekki nógu góð í að taka mér frí og
kúpla út. Þetta kjörtímabil hefur verið
nokkuð strembið, bæði höfum við verið
á milli vita með sérfræðingastörf, eins
og í byggingar- og skipulagsmálum, og
síðan veldur tekjufall vegna Covid því
að við höldum í okkur með að ráða í
störf sem við ætluðum okkur. Það veldur
því að ég er meira að fást við tæknileg
úrlausnarefni en vera ber. Það er útaf
fyrir sig skemmtilegt en lengir óneitanlega
vinnudagana og tekur dálítið athyglina frá
öðrum verkefnum sem ég þarf að sinna.“
Gift æskuástinni
Björg fæddist í Grundarfirði 24. mars
1968, dóttir Ágústs Sigurjónssonar
vörubifreiðarstjóra og Dagbjartar
Guðmundsdóttur. Ágúst lést úr hjartaáfalli
þegar Björg var 14 ára gömul.
„Það var mikið áfall fyrir okkur mömmu og
yngri systur mínar tvær. Sú yngsta var þá
að vísu aðeins á öðru ári. Áfall af þessu
tagi breytir lífi manns, ég fullorðnaðist fyrir
aldur fram,“ rifjar Björg upp.
Tveimur árum síðar flutti fjölskyldan suður
svo Björg gæti gengið menntaveginn. Að
lokinni útskrift úr Háskóla Íslands flutti
hún aftur vestur og hefur búið þar allar
Björg Ágústsdóttir, bæjarstjóri í Grundarfirði
Ekki svo auðvelt að
slökkva á bæjarstjóranum