Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 2021, Page 36

Sveitarstjórnarmál - 2021, Page 36
SVEITARSTJÓRNARMÁL 36 götur síðan. Móðir hennar og yngri systur ílentust hins vegar fyrir sunnan og er móðir hennar nú búsett í Kópavogi. Björg giftist æskuástinni sinni og eiga þau tvö börn. Eiginmaður hennar er Hermann Gíslason, vélstjóri á togaranum Runólfi SH 135, Grundfirðingur eins og hún. Hún var 16 og hann 18 þegar ævintýrið hófst. Björg dóttir þeirra er tvítug, nýlega flutt til Bandaríkjanna þar sem unnusti hennar er við nám. Átján ára gamall sonur Bjargar og Hermanns, Atli Ágúst, stundar nám við Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Nýlega bættist svo fjölskyldunni góður liðsauki í hvolpinum Húgó, sem er af áströlsku fjárhundakyni. Björg á góðar minningar um æskuárin í Grundarfirði. „Það var einfalt og gott að alast hér upp. Þetta var gott samfélag í mikilli uppbyggingu. Ég átti áhyggjulausa æsku, átti mína góðu vini og lifði góðu landsbyggðarlífi. Sem unglingur og ung kona vann ég meðal annars í fiski á sumrin og ýmis önnur störf; í unglingavinnu, í sjoppu og í banka.“ Stjórnast af sjálfsbjargarhvöt í sjónum Þótt Björg segist vera léleg að slíta sig frá vinnunni hefur hún þó nokkrar leiðir til þess. „Ég hef til dæmis gaman af því að ganga og þá ekki síst á fjöll þótt ég geri of lítið af því. Ein besta slökun sem ég get hugsað mér er sjósund sem ég byrjaði að stunda ásamt nokkrum öðrum konum á síðasta ári. Við höfum góða aðstöðu til sjósunds hér rétt við bæjarmörkin. Reyndar á nokkrum stöðum, en við eigum okkur uppáhaldsstað þar sem er falleg sandströnd og einstakt umhverfi. Við pössum okkur á að auglýsa þennan stað ekki á samfélagsmiðlum, viljum hafa hann út af fyrir okkur“, segir Björg og hlær. „Ég er algjör kuldaskræfa en hef sterkan vilja og þegar ég fer í sjóinn stjórnast ég algjörlega af sjálfsbjargarhvötinni. Hugsa ekki um neitt annað á meðan, þetta er bara spurning um að þrauka og njóta, þrauka kuldann og fara svo að njóta stundarinnar. Ég hef farið í sjóinn með sjávarhita undir frostmarki og lofthita allt niður í 8 stiga frost. Ég hélt ég ætti þetta ekki til. Þetta er sterk, frumstæð upplifun. Að breiða fötin sín á stóran stein og ganga síðan í sjóinn. Algjörlega magnað að temja svona hugann og sjálfan sig. Og einstök vellíðan sem hellist í mann á eftir." Hvílist við píanóið Covid-19 hefur haft sín áhrif á líf Bjargar eins og flestra annarra. Þegar faraldurinn skall á fór hún og keypti sér píanó og byrjaði að spila. Hún er nú að hefja annan veturinn á píanó í tónlistarskólanum. Hún var ekki alveg ókunnug nótnaborði því hún lærði á blokkflautu og orgel sem krakki alla grunnskólagönguna. Á fullorðinsárum líka á þverflautu. Hún er því vel læs á nótur. „Ég gríp í píanóið og spila mér til ánægju. Það gengur ágætlega en fer náttúrulega bara eftir því hvað maður er duglegur að æfa sig. Ég geri þetta sjálfri mér til ánægju en er ekki farin að spila neitt opinberlega, hvað sem síðar verður! Með þessu hvílist ég, næ að gleyma mér, næra mig og hlaða.“ Björg fór ásamt Hermanni, eiginmanni sínum, hringinn umhverfis Ísland sumarið 2020 eins og svo fjölmargir aðrir landsmenn. Hér eru þau á Seyðisfirði. Börn og tengdabörn; Til vinstri Atli Ágúst Hermannsson og Thelma Lind Björgvinsdóttir, unnusta hans. Til hægri Björg Hermannsdóttir og Bjarni Guðmann Jónsson, eiginmaður hennar. Eitt af því sem ég hef náð að stjórna er að hafa ekki öllum stundum áhyggjur af öllu. Maður verður líka að finna sér eitthvað sem maður getur gleymt sér í.

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.